Eyjan

Svarthöfði skrifar: Já-ið er í framsókn

Mynd

Framsóknarflokkurinn berst með kjafti og klóm gegn því að íslenska þjóðin fái að taka afstöðu til samnings um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Einu sinni barðist Framsókn fyrir aðild Íslands að ESB en svo breyttist það. Nú er formaður í Framsókn sem hefur það helsta, jafnvel eina, baráttumál að Ísland megi aldrei fara í ESB.

Já, Framsókn er umhugað að unga fólkið og börnin okkar – barnabörnin – fái að berjast við sömu vexti og verðtryggingu sem við og foreldrar okkar höfum þurft að berjast við. Ekkert herðir krakkann eins og að takast á við mótlæti! Framsókn hefur löngum verið tjóðruð í fortíðinni og nýr formaður heldur í hefðina.

Svarthöfði fylgist af áhuga með umræðum um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Hann fylgist líka með skoðanakönnunum um það hvernig Íslendingar ætla að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst næstkomandi.

Það hefur ekki farið fram hjá Svarthöfða að frá því að síðasta könnun var gerð í júní hafa orðið verulegar breytingar á því hvernig fólk hyggst verja atkvæði sínu. Í júní vildi elsti hópurinn alls ekki fara inn í ESB. Í síðustu könnun vill 60% elstu kjósenda ganga í ESB.

Hvað breyttist? Jú, í millitíðinni voru stofnuð samtökin „Áfram Ísland“ þar sem Halldór Benjamín Þorbergsson og Ólafur Ragnar Grímsson hömruðu gegn aðild Íslands að ESB.

Það rifjast upp fyrir Svarthöfða hver Ólafur Ragnar er og fyrir hvað hann stendur. Margir, fleiri en Svarthöfði, muna fjármálaráðherratíð Ólafs Ragnars, sem seint verður talin góð. Þess vegna vilja þeir sem þekkja Ólaf Ragnar alls ekki hoppa á vagninn með honum. Vítin eru til að varast.

Svarthöfði er ekki sannfærður um að þegar ofurlaunaþeginn Halldór Benjamín (8,7 milljónir á mánuði í laun) og Ólafur Ragnar, sjálfur á ofureftirlaunum, taka sig saman, sé það í þágu almennings. Hagsmunir auðmannanna eru tæplega þeir sömu og íslensks almennings!

Og nú sýna skoðanakannanir að byrinn er með þeim sem ætla að segja já! Jái-ið vex. Segja má að jáið sé í framsókn!