Orðið á götunni: Klofin verkalýðshreyfing – Sólveig Anna tapsár
Þær Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, hafa löngum eldað grátt silfur saman. Þær eru formenn tveggja stærstu verkalýðsfélaga landsins, félaga sem saman eru með um helming allra þeirra sem eru félagsmenn í verkalýðsfélögum.