fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
Fréttir

Stórfelld líkamsárás í Grafarvogi

Ritstjórn DV
Laugardaginn 14. febrúar 2026 09:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nóg var um að vera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt eins og svo oft áður á föstudagskvöldi og aðfaranótt laugardags.

Framið var innbrot og þjófnaður í gistiheimili í miðborg Reykjavíkur.

Maður var handtekinn í Múlahverfi grunaður um söludreifingu fíkniefna, peningaþvætti og útlendingalagabrot.

Tilkynnt var um slagsmál miðborginni. Tvö voru handtekin grunuð um líkamsárás og brot á lögreglusamþykkt.

Innbrot var framið í bifreið í Hlíðunum.

Tilkynnt var um ungmenni að sprengja flugelda í Hafnarfirði og tilkynnt var um húsbrot í Garðabæ en einn var handtekinn vegna þess.

Maður var handtekinn í miðbæ Kópavogs grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, söludreifingu fíkniefna og útlendingalagabrot.

Maður var handtekinn í Breiðholti vegna gruns um líkamsárás, eignaspjöll, hótanir og vopnalagabrot.

Loks má geta þess að tveir menn voru handteknir í Grafarvogi grunaðir um stórfellda líkamsárás og vörslu fíkniefna. Það koma hins vegar engar upplýsingar fram í dagbók lögreglu um afdrif þolanda árásarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Simmi Vill haslar sér nýjan völl: „Mikill heiður að taka við slíku verkefni”

Simmi Vill haslar sér nýjan völl: „Mikill heiður að taka við slíku verkefni”
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Gagnrýnir „óásættanlega mismunun“ í Reykjanesbæ

Gagnrýnir „óásættanlega mismunun“ í Reykjanesbæ
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Segir Guðmund Inga ekki á leið í annan flokk og mýtu að hún sé að reyna að losa sig við Flokk fólksins – „Hún er real hún Inga“

Segir Guðmund Inga ekki á leið í annan flokk og mýtu að hún sé að reyna að losa sig við Flokk fólksins – „Hún er real hún Inga“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Íslendingar og Pólverjar hjálpuðu Úkraínumönnum yfir þröskuldinn í máli gegn Rússum – „Mikilvægt skref“

Íslendingar og Pólverjar hjálpuðu Úkraínumönnum yfir þröskuldinn í máli gegn Rússum – „Mikilvægt skref“
Fréttir
Í gær

Dómurinn gegn Helga Bjarti: Gögn ekki talin styðja allan framburð drengsins – Kynferðisleg áreitni en ekki nauðgun

Dómurinn gegn Helga Bjarti: Gögn ekki talin styðja allan framburð drengsins – Kynferðisleg áreitni en ekki nauðgun
Fréttir
Í gær

Varar við endurkomu verðstýringar ríkisins og segir að stjórnvöld ættu að líta í eigin barm

Varar við endurkomu verðstýringar ríkisins og segir að stjórnvöld ættu að líta í eigin barm