fbpx
Laugardagur 07.febrúar 2026
Fréttir

Vara við gervigreind sem þykist vera Sigríður Björk

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 4. febrúar 2026 11:30

Sigríður Björk Guðjónsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er varað við svikasímtölum þar sem notast er við gervigreind sem kynnir sig sem Sigríði Björk Guðjóndóttur fyrrverandi ríkislögreglustjóra.

Einnig hefur verið varað áður við svikapóstum sem sendir hafa verið undir nafni Sigríðar Bjarkar en svikahrapparnir virðast ekki hafa frétt af starfslokum hennar sem ríkislögreglustjóri.

Í nýju tilkynningunni segir að lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafi borist tilkynningar um svikasímtöl þar sem notast sé við gervigreind. Hringt sé úr leyninúmeri og rödd sem búin sé til af gervigreind kynni sig sem Sigríði Björk. Gervigreindin segist vera að hringja vegna alvarlegs afbrots og spurt sé hvort viðkomandi hafi þegar greitt sekt vegna málsins.

Lögregla ítrekar að hér sé um svikasímtöl að ræða. Þau séu hvorki frá Sigríði Björk né lögreglunni. Lögreglan innheimti ekki sektir í gegnum síma.

Það sé góð regla að gefa aldrei upp kortanúmer í gegnum síma og heimila ekki rafræna auðkenningu nema maður sé sjálfur að verki.

Segir að lokum að ef fólk telji sig hafa orðið fyrir svikum vegna þessara símtala og telji sig hafa tapað fjármunum sé því bent á að hafa strax samband við sinn viðskiptabanka og fá þar ráðgjöf og í framhaldinu tilkynna málið til lögreglu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Dæmdur fyrir að áreita fjölda 11-13 ára stúlkna á Snapchat- „Hvernig ertu svona falleg ekki eldri en þetta?“

Dæmdur fyrir að áreita fjölda 11-13 ára stúlkna á Snapchat- „Hvernig ertu svona falleg ekki eldri en þetta?“
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Þrautaganga konu í heilbrigðiskerfinu – Send heim eftir skoðun en ári síðar var staðan orðin skelfileg

Þrautaganga konu í heilbrigðiskerfinu – Send heim eftir skoðun en ári síðar var staðan orðin skelfileg
Fréttir
Í gær

Íslenskur karlmaður missti annað eistað eftir að hafa farið í ófrjósemisaðgerð

Íslenskur karlmaður missti annað eistað eftir að hafa farið í ófrjósemisaðgerð
Fréttir
Í gær

Tveir nákomnir ættingjar Gunnars létust vegna slysa á bráðadeild – „Verður að tryggja að dreginn verði af þeim lærdómur“

Tveir nákomnir ættingjar Gunnars létust vegna slysa á bráðadeild – „Verður að tryggja að dreginn verði af þeim lærdómur“