fbpx
Miðvikudagur 22.apríl 2026

Varla snjó að sjá á stórum hluta landsins

Gunnar Bender
Miðvikudaginn 4. nóvember 2020 10:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Góður labbitúr um helgina skilaði tveimur fuglum og það sáust fjórar. Tvær rjúpur var bara fínt, flott veður  og ekki snjór að sjá nema í efstu fjöllum. Útiveran var meiriháttar, hoppa yfir læki og koma sér áfram í mosanum, halda áfram.

Veðurfarið er ótrúlega gott þessa dagana, heitt sumstaðar og varla snjó að sjá á stórum hluta landsins. Veðurfarið er greinilega að breytast svo um munar.

Flestir veiddu hóflega um helgina, menn reyna að ná í jólamatinn og það er bara þið besta mál. Hófleg veiði skiptir öllu, rjúpan er í lægð.

Og á leiðinni í gengnum Borgarnes stoppuðum við í stutta stund, myndavélin gripinn og smellt fullt af myndum af rjúpunum þar. Það var ekki hægt að hafa þetta betra, svona átti þetta líka að vera og  það var enginn að æsa sig,  hvorki veiðimenn né fuglinn.

Það sem skiptir mestu er útiveran og hressandi ganga upp um hóla og hæðir, það er málið. Ísland hefur uppá svo margt að bjóða.

 

Mynd. Þessi rjúpa hafði komið sér fyrir niður við Borgarnes og hafi það gott ásamt fleirum flugum þar. Mynd María Gunnarsdóttir.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Ungstirni varð fyrir stunguárás í Danmörku

Ungstirni varð fyrir stunguárás í Danmörku
Fókus
Fyrir 10 klukkutímum

Karl konungur minnist móður sinnar á afmælisdegi hennar

Karl konungur minnist móður sinnar á afmælisdegi hennar
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Skuldar hátt í 300 þúsund í sjúkrabílaferðir

Skuldar hátt í 300 þúsund í sjúkrabílaferðir
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Segir frá því þegar frændur tókust á – Endaði með 24 spor í andliti

Segir frá því þegar frændur tókust á – Endaði með 24 spor í andliti