fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Pressan

Bjó til yfir 700 klámmyndir með gervigreind – nú er fyrsti dómurinn fallinn

Pressan
Fimmtudaginn 9. apríl 2026 21:45

Strahler á margra ára fangelsi yfir höfði sér.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður í Ohio í Bandaríkjunum hefur játað sök í umfangsmiklu máli sem tengist netofsóknum, dreifingu kynferðislegs efnis og notkun gervigreindar til að búa til falsaðar nektar- og klámmyndir af raunverulegu fólki.

Samkvæmt bandaríska dómsmálaráðuneytinu er hann sá fyrsti sem sakfelldur er samkvæmt nýjum alríkislögum sem beinast sérstaklega að slíkum fölsunum með gervigreind. Breska blaðið The Guardian fjallar um dóminn á vef sínum.

Maðurinn sem um ræðir, James Strahler II, 37 ára, játaði sök fyrir alríkisdómi á þriðjudag. Málið er eitt það fyrsta sem reynir á svonefnd Take It Down Act, en um er að ræða lög sem banna birtingu eða dreifingu viðkvæmra mynda, sem búnar eru til með gervigreind (e. deepfake), án samþykkis þess sem í hlut á.

Málið þykir sérlega alvarlegt í ljósi þess að börn komu einnig við sögu í hluta þess efnis sem hann framleiddi.

Samkvæmt saksóknurum sendi Strahler skilaboð til að minnsta kosti sex fullorðinna kvenna á tímabilinu frá desember 2024 til júní 2025. Skilaboðin innihéldu bæði raunverulegar og gervigreindarmyndir af fórnarlömbunum.

Þá er hann sagður hafa notað gervigreind til að búa til klámfengin myndskeið þar sem eitt fórnarlambið var sýnt í kynferðislegum aðstæðum með föður sínum. Saksóknarar segja að þeim myndskeiðum hafi verið dreift til samstarfsfólks konunnar.

Saksóknarar segja jafnframt að hann hafi búið til klámfengið efni af börnum með gervigreind með því að nota andlit drengja undir lögaldri úr nærsamfélagi sínu. Andlitin setti hann á líkama fullorðinna eða annarra barna í klámfengnum myndskeiðum.

Alls er talið að Strahler hafi búið til meira en 700 myndir af bæði raunverulegum fórnarlömbum og gervipersónum. Efnið var samkvæmt ákæru birt á vefsíðu sem tengist kynferðisofbeldi gegn börnum, að því er fram kemur í frétt The Guardian.

Nýju lögin, sem tóku gildi í maí á síðasta ári eftir undirritun Donalds Trump Bandaríkjaforseta, skylda einnig samfélagsmiðla og vefsíður til að fjarlægja allt slíkt efni innan 48 klukkustunda frá beiðni fórnarlambs.

Endanleg refsing hefur ekki verið ákveðin enn og verður það gert við sérstaka dómsuppkvaðningu. Ljóst er hins vegar að Strahler gæti átt yfir höfði sér margra ára fangelsisdóm.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Óttast að mannrán hafi verið framið á annan í páskum

Óttast að mannrán hafi verið framið á annan í páskum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Óttast endurkomu hættulegs barnasjúkdóms eftir samdrátt í bólusetningum

Óttast endurkomu hættulegs barnasjúkdóms eftir samdrátt í bólusetningum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Læknir segir að þessi næringarefni séu nauðsynleg fyrir alla yfir sextugu

Læknir segir að þessi næringarefni séu nauðsynleg fyrir alla yfir sextugu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Allt brjálað í Bretlandi vegna Kanye West

Allt brjálað í Bretlandi vegna Kanye West
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fyrrum foringi í flughernum segir að geimverur hafi aftengt bandarísk kjarnorkuvopn í kalda stríðinu

Fyrrum foringi í flughernum segir að geimverur hafi aftengt bandarísk kjarnorkuvopn í kalda stríðinu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Viltu vita hver andlegi aldur þinn er? – Þá þarftu bara að telja hundana

Viltu vita hver andlegi aldur þinn er? – Þá þarftu bara að telja hundana
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þess vegna er best að þurrka leirtauið ekki með viskastykki

Þess vegna er best að þurrka leirtauið ekki með viskastykki
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þetta getur gefið til kynna að þú fáir of lítið prótín

Þetta getur gefið til kynna að þú fáir of lítið prótín