fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Pressan

Trump harðlega gagnrýndur: Birti óritskoðað myndband af morði á Truth Social

Pressan
Föstudaginn 10. apríl 2026 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur oft sætt harðri gagnrýni fyrir orðræðu sína um innflytjendamál en segja má að sú gagnrýni sé komin á nýtt stig eftir að hann birti óritskoðað myndband af því þegar kona var myrt með hamri fyrir utan bensínstöð í Fort Myers í Flórída.

Myndbandið, sem tekið var 2. apríl, sýnir skelfilega árás á afgreiðslukonuna Nilufar Easmin, innflytjanda frá Bangladess.

Samkvæmt staðbundnum fjölmiðlum er hinn grunaði, Rolbert Joachin, heimilislaus maður af haítískum uppruna. Hann var handtekinn sama dag og árásin átti sér stað og er nú í haldi, grunaður um morð og eignaspjöll.

Trump fjallaði um málið á Truth Social í gærkvöldi þar sem hann kallaði hinn grunaða meðal annars ólöglegan innflytjanda og „dýr“. Þá sagði hann myndbandið vera meðal þess grimmilegasta sem komið hefur fyrir sjónir almennings.

Ummælin og birting myndbandsins hafa vakið hörð viðbrögð, ekki síst þar sem heimavarnarráðuneytið hafði áður birt ritskoðaða útgáfu af myndbandinu.

Gagnrýnendur segja þetta falla að þekktu mynstri í málflutningi forsetans, þar sem hann hefur ítrekað tengt ofbeldisglæpi við innflytjendur og innflytjendastefnu fyrri forseta Bandaríkjanna, einkum Joe Biden. Slík tenging hafi í sumum tilvikum reynst byggð á röngum eða villandi forsendum.

Trump hefur einnig ítrekað beint spjótum sínum að Haítíbúum sem hafa fengið tímabundna vernd í Bandaríkjunum vegna ástandsins í landinu. Tilraunir stjórnvalda til að afturkalla þá stöðu hafa þó verið stöðvaðar fyrir dómstólum.

Í kjölfar birtingarinnar hafa talsmenn mannréttinda- og innflytjendasamtaka sakað forsetann um að nýta hrottalegt ofbeldi til að ala á ótta og magna andúð í garð innflytjenda.

Samkvæmt gögnum rannsóknarinnar hafði hinn grunaði daginn áður farið inn á bensínstöðina og krafið afgreiðslukonuna um peninga eftir að honum tókst ekki að taka út reiðufé úr hraðbanka á staðnum.

Upp úr sauð daginn eftir en í myndbandinu sem Trump birti sést þegar hinn grunaði vinnur skemmdarverk á bifreið fyrir utan bensínstöðina. Þegar Easmin gengur út af bensínstöðinni kemur hinn grunaði askvaðandi, kýlir hana þungu hnefahöggi í andlitið og lemur hana síðan með hamri þar sem hún liggur hreyfingarlaus.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Dularfull andlát og hvörf níu vísindamanna með tengsl við NASA og kjarnorkuleyndarmál vekja áhyggjur

Dularfull andlát og hvörf níu vísindamanna með tengsl við NASA og kjarnorkuleyndarmál vekja áhyggjur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Óttast að mannrán hafi verið framið á annan í páskum

Óttast að mannrán hafi verið framið á annan í páskum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Dreymir þig um að flytja út? Þessi átta lönd greiða þér fyrir það

Dreymir þig um að flytja út? Þessi átta lönd greiða þér fyrir það
Pressan
Fyrir 3 dögum

Læknir segir að þessi næringarefni séu nauðsynleg fyrir alla yfir sextugu

Læknir segir að þessi næringarefni séu nauðsynleg fyrir alla yfir sextugu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þessi afskekkta eyja fær örfáa gesti en glímir við risavaxinn vanda

Þessi afskekkta eyja fær örfáa gesti en glímir við risavaxinn vanda
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fyrrum foringi í flughernum segir að geimverur hafi aftengt bandarísk kjarnorkuvopn í kalda stríðinu

Fyrrum foringi í flughernum segir að geimverur hafi aftengt bandarísk kjarnorkuvopn í kalda stríðinu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Það hversu oft þú borðar getur haft áhrif á heilann

Það hversu oft þú borðar getur haft áhrif á heilann
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þess vegna er best að þurrka leirtauið ekki með viskastykki

Þess vegna er best að þurrka leirtauið ekki með viskastykki