fbpx
Fimmtudagur 16.apríl 2026
Pressan

Áhrifavaldur dæmdur í 75 ára fangelsi

Pressan
Fimmtudaginn 9. apríl 2026 06:30

Cash Cartier og Sheila Cuevas.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandarískur áhrifavaldur og markaðsmaður á samfélagsmiðlum, Kaleb Mickens, sem gekk einnig undir nafninu Cash Cartier, hefur verið dæmdur í 75 ára fangelsi vegna dauða kærustu sinnar, Sheilu Cuevas, árið 2023, og fleiri brota.

Mickens, sem er 34 ára, var ákærður fyrir alvarlega líkamsárás sem leiddi til dauða Sheilu þann 8. október 2023. Hann játaði sök og fékk 40 ára dóm fyrir vikið.

Mickens hélt því upphaflega fram að Cuevas hefði orðið fyrir árás frá hundi hans, Soldier, eftir að hann hringdi í neyðarlínuna og tilkynnti að hún andaði ekki.

Hundurinn var í kjölfarið tekinn af dýraeftirlitinu á svæðinu og aflífaður, en rannsókn leiddi síðar í ljós að dýrið tengdist hvorki áverkum hennar né dauða.

Dómurinn tekur einnig til eldri brota en með árásinni rauf hann skilorð dóma sem hann hafði áður hlotið fyrir líkamsárás, þar á meðal gegn fyrrverandi kærustum sínum. Bættust þannig 20 og 15 ár við 40 ára dóminn sem hann hlaut vegna dauða Sheilu.

Við dómsuppkvaðninguna stigu nokkrar konur fram í réttarsal og lýstu reynslu sinni af Mickens. Lýstu þær meðal annars stjórnsemi hans, kynferðisofbeldi og langvarandi andlegu ofbeldi.

Fjölskylda Cuevas ávarpaði einnig dóminn. Þar kom meðal annars fram að enginn fangelsisdómur gæti fært henni Sheilu aftur, en að nauðsynlegt væri að hann sætti ábyrgð og tæki afleiðingum gjörða sinna.

Að sögn saksóknara var Cuevas afburðanemandi með framhaldsgráðu, en hún hefði flækst inn í ofbeldissamband sem hún átti erfitt með að losna úr.

Mickens var þekktur innan markaðsfyrirtækisins IM Academy, þar sem hann starfaði undir nafninu Cash Cartier. Hafði hann það hlutverk að lokka ungt fólk inn í þjálfunarteymi sitt með loforðum um miklar tekjur. Hann er um tíma sagður hafa þénað allt að tíu milljónir króna á mánuði, en um það leyti sem Sheila lést var farið að halla undan fæti hjá honum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Kraftaverkabarnið handtekið nærri 40 árum síðar

Kraftaverkabarnið handtekið nærri 40 árum síðar
Pressan
Í gær

Nýburi fannst í plastpoka árið 1981 – Áratugum síðar kom sannleikurinn í ljós

Nýburi fannst í plastpoka árið 1981 – Áratugum síðar kom sannleikurinn í ljós
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Djöfullinn er til, hann er innra með mér, og ég borðaði mömmu”

„Djöfullinn er til, hann er innra með mér, og ég borðaði mömmu”
Pressan
Fyrir 2 dögum

Reyndi að lina þjáningar móður sinnar – endaði í tveggja ára martröð

Reyndi að lina þjáningar móður sinnar – endaði í tveggja ára martröð
Pressan
Fyrir 4 dögum

Það sem dauðadæmd kona játaði hjá lögreglunni sækir enn á fyrrum lögreglumann

Það sem dauðadæmd kona játaði hjá lögreglunni sækir enn á fyrrum lögreglumann
Pressan
Fyrir 4 dögum

Kúba undirbýr sig undir árás frá Bandaríkjunum – „Ef við þurfum að deyja, þá deyjum við“

Kúba undirbýr sig undir árás frá Bandaríkjunum – „Ef við þurfum að deyja, þá deyjum við“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Langur svefn getur leitt til þyngdartaps

Langur svefn getur leitt til þyngdartaps
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þess vegna er mikilvægt að halda heimilinu hreinu og vel viðhöldnu

Þess vegna er mikilvægt að halda heimilinu hreinu og vel viðhöldnu