fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Þessi merki um Parkinsonssjúkdóminn þekkir þú kannski ekki

Pressan
Laugardaginn 14. mars 2026 14:30

Parkinsonssjúkdómurinn er taugasjúkdómur.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Parkinsonssjúkdómurinn er næstalgengasti taugasjúkdómurinn á eftir Alzheimers. En þrátt fyrir það veit fólk almennt ekki mikið um sjúkdóminn, einkenni hans og áhrif.

„Það eru rúmlega 40 mismunandi sjúkdómseinkenni sem fylgja Parkinsons og hafa mjög mismunandi áhrif á fólk,“ hefur The Independent eftir Jennifer Taylo, forstjóra Parkinsonshjálparlínunnar í Bretlandi.

Orsök Parkinsons er að heilafrumur, þar sem framleiða dópamín, hætta að virka. Ekki er vitað af hverju en hugsanlega koma erfðir, umhverfi og lífsstíll við sögu.

Hér eru nokkur snemmbúin einkenni Parkinsons að sögn sérfræðinga:

Verkir – Margvíslegir verkir, til dæmis vöðvaverkir, taugaverkir eða vöðvakrampi geta verið snemmbúin merki og koma oft fram löngu áður en sjúkdómurinn er greindur.

Kvíði – Viðvarandi áhyggjur og kvíði geta komið snemma fram. Þetta getur orðið til þess að fólk dregur sig í hlé frá öðru fólki og einnig getur þetta valdið kvíðaköstum. Hugleiðsla og hreyfing geta unnið gegn þessu.

Jafnvægisvandamál – Jafnvægisvandamál og aukin tilhneiging til að detta koma oft fram á síðari stigum sjúkdómsins en jafnvægisleysi getur komið snemma fram og valdið óöryggi.

Stífleiki – Margir upplifa stífleika í handleggjum og fótum, oft aðeins öðru megin. Þetta getur valdið skertri hreyfigetu og minni handleggssveiflum þegar gengið er.

Skert þefskyn – Mörgum árum áður en fólk fer að finna fyrir vandamálum með hreyfingar getur það misst þefskynið eða hluta af því. Það er mjög snemmbúið merki.

Svefnvandamál og þreyta – Svefnleysi, fótaóreiða og órólegur svefn geta verið snemmbúin merki um Parkinsonssjúkdóminn. Margir finna einnig fyrir örmögnun, án sýnilegrar ástæðu, óháð hversu mikla hvíld þeir fá.

Skjálfti – Skjálfti í höndum, aðallega þegar hvílst er, er klassískt einkenni. Skjálfti getur líka komið fram í kjálkanum, fótum eða innvortis.

Þunglyndi – Þunglyndi getur komið fram áður eða eftir sjúkdómsgreiningu og ýtir undir einkenni hreyfinga og hugrænna einkenna.

Lítil skref og hægar hreyfingar – Skrefin verða minni og þéttari og það getur verið erfitt að ljúka smáverkefnum á borð við að hneppa skyrtu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár
Pressan
Í gær

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala
Pressan
Í gær

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“