fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Pressan
Laugardaginn 6. júní 2026 14:30

Mynd: Unsplash.com

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef þér finnst gaman að lesa þá geturðu glaðst yfir að vísindin hafa ítrekað staðfest hversu mikill ávinningur er af því að lesa. Rannsóknir hafa sýnt að reglulegur lestur bætir heilsuna og gerir fólk meira aðlaðandi.

Í bókinni „How To Prevent Dementi“ segir taugalæknirinn Richard Restak að lestur, sérstaklega á fagurbókmenntum, geti verið áhrifaríkasta leiðin til að byggja upp „hugrænan varasjóð“.

Þeim mun stærri sem þessi varasjóður er, þeim mun auðveldara á heilinn með að vinna gegn hnignun hugrænnar getu.

Í rannsókn frá 2022, sem Huffington Post fjallaði um, kemur fram að fólk, sem las tvisvar eða oftar í viku, átti síður á hættu að þróa með sér elliglöp.

Lifestyle ao Minuto segir að rannsókn frá 2023 hafi sýnt fram á að börn, sem lásu í 12 klukkustundir á viku, voru með betri heilabyggingu og þar með betri hugræna getu og andlegt heilbrigði þeirra var betra en hjá þeim sem lásu minna.

Önnur áhugaverð niðurstaða, sem stefnumótasíðan eHarmony skýrði frá, er að fólk, sem sagði að lestur væri eitt af áhugamálum þess. Var 19% líklegra til að fá skilaboð í gegnum stefnumótaapp en þeir sem ekki sögðu lestur vera áhugamál.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Melania varð brjáluð – Sérstök regla um Barron var brotin

Melania varð brjáluð – Sérstök regla um Barron var brotin
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Viðvörun móður eftir að eins árs barn hlaut eitrun af algengri garðplöntu

Viðvörun móður eftir að eins árs barn hlaut eitrun af algengri garðplöntu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vilja fangelsa meintan morðingja Madeleine McCann á ný

Vilja fangelsa meintan morðingja Madeleine McCann á ný
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hylltur sem hetja eftir hryðjuverkaárás – nú sakaður um árás á föður sinn

Hylltur sem hetja eftir hryðjuverkaárás – nú sakaður um árás á föður sinn
Pressan
Fyrir 3 dögum

Lögreglumenn björguðu 11 andarungum meðan móðirin fylgdist óþolinmóð með – MYNDBAND

Lögreglumenn björguðu 11 andarungum meðan móðirin fylgdist óþolinmóð með – MYNDBAND
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ný rannsókn vekur áhyggjur: Veip tengist breytingum í þúsundum gena

Ný rannsókn vekur áhyggjur: Veip tengist breytingum í þúsundum gena