
Gotland er í Eystrasalti og gera viðbúnaðaráætlanir ráð fyrir að ef allt fer á versta veg þurfi að vera hægt að jarðsetja um 3.000 eyjaskeggja.
Bimbi Ollberg er prófastur í Visby sókn á Gotlandi og einnig stríðs- og neyðaraðgerðastjóri fyrir alla eyjuna.
Í samtali við TV2 sagði hann að hann beri ábyrgð á stjórn neyðaraðgerða og undirbúnings neyðaraðgerða.
Um 60.000 manns búa á Gotlandi, stærsti hlutinn í Visby, sem er stærsti bær eyjunnar.
Í Visby á að vera hægt að taka við 1.500 látnum á sama tíma. „Já, í einu. Þetta eru 5% af íbúum Visby. Við miðum við að við eigum að geta tekið við og meðhöndlað 5% íbúanna,“ sagði hann.
Af praktískum ástæðum er því haldið leyndu hvar grafstæðin eru. Bimbi sagði að ástæðan sé að ef staðsetningin verði gerð opinber muni fólk flykkjast þangað ef eitthvað gerist. Fólk muni auðvitað leita að týndum ættingjum sínum.