fbpx
Föstudagur 15.maí 2026
Pressan

Ísraelsmenn drápu yfirmann öryggisráðs Írans í nótt – Hótaði Trump í síðustu viku

Pressan
Þriðjudaginn 17. mars 2026 09:52

Ali Larijani. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ísraelsmenn segja að Ali Larijani, yfirmaður öryggisráðs Írans, hafi látist í sprengjuárás sem gerð var í nótt. Fjórir dagar eru síðan Ali var myndaður opinberlega í Teheran þar sem hann gekk ásamt þúsundum Írana á Quds-deginum svokallaða.

Þar gagnrýndi hann Trump í beinni útsendingu í viðtali og sagði síðan á samfélagsmiðlinum X að Trump ætti eftir að sjá eftir því að hafa ráðist á Íran.

„Trump segist vera að leita að skjótum sigri. Þó að það sé auðvelt að hefja stríð, þá er ekki hægt að vinna það með nokkrum tístum. Við munum ekki láta undan fyrr en við höfum látið þig sjá eftir þessum alvarlegu mistökum,“ skrifaði hann.

Ísraelsher staðfesti að Larijani, sem er titlaður ritari Þjóðaröryggisráðs Írans, hafi verið skotmark í árásunum í nótt. Segja Ísraelsmenn að herforinginn Gholamreza Soleimani, yfirmaður sjálfboðaliðasveitarinnar Basij, sem heyrir undir Byltingarvörð Írans, hafi einnig verið felldur í árásinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar