fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Kalla til hermenn vegna óhugnanlegs hvarfs stúlku

Pressan
Föstudaginn 9. janúar 2026 21:31

Sænskir hermenn að störfum. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hermenn hafa verið kallaðir til aðstoðar við leit að 18 ára stúlku sem saknað hefur í Svíþjóð síðan á þrettándanum.  Morðrannsókn hefur verið sett af stað en lögreglan leggur áherslu á að enn sé ekkert komið fram sem bendi til þess að stúlkan hafi verið myrt eða sé þolandi annars konar glæps.

Stúlkan hefur aðeins verið nafngreind með fornafni sínu, Hanna. Hún hvarf frá bænum Uddevalla í  Västra Götaland héraði í suðvesturhluta Svíþjóðar en þar búa um 35.000 manns. Hún sást síðast í bænum síðdegis á þrettándanum.

Hanna. Mynd/Skjáskot Instagram.

Fram kemur í umfjöllun Aftonbladet að 7. janúar hafi fundist föt utandyra á útivistarsvæði í bænum en lögreglan telur að Hanna eigi þessi föt.

Morðrannsókn hefur verið hafin en lögreglan segir að á þessari stundu sé það aðallega gert til að fjölga úrræðum hennar til að auðvelda leitina en með þessu sé hægt að yfirheyra fólk, leggja hald á hluti sem geta skipt máli og fara inn í hús.

Lögreglan leggur þó áherslu á að enn sem komið er sé ekkert sem liggi fyrir um að Hanna sé þolandi glæps.

Aðstæður við leitina hafa verið erfiðar vegna mikillar snjókomu og hvassvirðis á svæðinu. Snjóþyngslin eru það mikil að gripið hefur verið til þess ráðs að moka snjóinn með skóflum til að leita undir honum að Hönnu. Hermenn hafa verið kallaðir til aðstoðar við það mannaflsfreka verkefni. Hundar og drónar hafa einnig verið nýttir við leitina. Svæðið þar sem fötin fundust er í námunda við rólegt íbúðahverfi í bænum og íbúar þar hafa tjáð Aftonbladet að þeir séu slegnir óhug vegna málsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina
Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Aukin glæpatíðni á Tenerife

Aukin glæpatíðni á Tenerife
Pressan
Í gær

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin
Pressan
Í gær

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Í gær

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman