Taskan góða er frá Louis Vuitton að sögn Daily Mail. Sérfræðingurinn Marc Allum sagði í fyrstu að taskan væri „ónýtt gamalt drasl“ og benti á slæmt ástand hennar. En þegar hann fór að skoða málið ofan í kjölinn kom annað hljóð í strokkinn.
Þetta er taska frá því um 1890, með „útilokað að brjóta upp“ lás og klassískum smáatriðum eftir handverksfólk þess tíma.
Konan, sem fékk töskuna frá fjölskylduvini, sagði að þegar tekið var til í húsinu hafi taskan staðið í skúrnum og teppi og lampi verið ofan á henni. „Við héldum bara að þetta væri gamalt drasl“.
Þrátt fyrir að taskan þarfnist viðgerðar þá er hún metin á sem svarar til 440.000 til 600.000 króna.