fbpx
Fimmtudagur 19.júní 2025
Pressan

„Málinu var aldrei lokað“ – 35 árum síðar skilaði rannsóknin árangri

Pressan
Fimmtudaginn 19. júní 2025 06:30

Kevin Childerley.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Snemma að morgni 19. febrúar 1990 var Kevin Childerley, 30 ára, stunginn til bana í „hrottalegri árás“ þar sem hann svaf í rúminu sínu við hlið eiginkonu sinnar, Denise. Hún var einnig stungin en lifði árásina af en sauma þurfti 160 spor í hana. Tvö ung börn þeirra voru heima þegar þetta gerðist.  Fjölskyldan bjó í Mansfield Woodhouse.

Lögreglan handtók nýlega 62 ára konu sem er grunuð um að hafa leynt upplýsingum varðandi árásina. Hún var síðar látin laus gegn tryggingu.

Ruby Burrow, yfirlögregluþjónn, sagði að „málinu hafi aldrei verið lokað“ og að lögreglumenn hafi notað nýjustu tækni í leit að svörum. Hún sagði að árásin hafi verið „hrottaleg“ og elskaður faðir hafi verið sviptur lífinu og eiginkona hans hafi hlotið áverka sem munu fylgja henni alla ævi.

„Á meðan á rannsókninni stóð vorum við staðráðin í að láta réttlætið ná fram að ganga fyrir fórnarlömbin og fyrir börnin tvö og barnabörnin sem fá aldrei að hitta afa sinn,“ sagði hún einnig að sögn Sky News.

Burrow sagði að handtakan væri „mikilvægur áfangi“ og hvatti fólk til að gefa sig fram við lögregluna ef það hefur einhverjar upplýsingar um málið.

„Við vitum að svarið við hver myrti Kevin er að finna í samfélaginu og við teljum einnig að bandalög og tryggðabönd hafi breyst á þeim rúmu þremur áratugum sem eru liðnir,“ sagði hún að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Súkkulaðineysla getur aukið kynhvöt karla og bætt frammistöðuna í kynlífinu

Súkkulaðineysla getur aukið kynhvöt karla og bætt frammistöðuna í kynlífinu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hefja vinnu við uppgröft og vonast til að bera kennsl á lík allt að 800 barna

Hefja vinnu við uppgröft og vonast til að bera kennsl á lík allt að 800 barna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þess vegna setja sumir sítrónu í uppþvottavélina

Þess vegna setja sumir sítrónu í uppþvottavélina
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þrjú merki um að hún hafi áhuga á þér

Þrjú merki um að hún hafi áhuga á þér