fbpx
Miðvikudagur 18.júní 2025
Pressan

Þrír unglingspiltar ákærðir – Lokkuðu samkynhneigða í gildru – Skutu eitt fórnarlambið í höfuðið

Pressan
Miðvikudaginn 18. júní 2025 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á mánudaginn hófust réttarhöld yfir fjórum 16 og 17 ára piltum sem eru ákærðir fyrir að hafa lokkað samkynhneigða karla í gildru til að geta beitt þá ofbeldi. Í einu tilfelli skutu þeir fórnarlambið í höfuðið með loftbyssu.

Piltarnir stofnuðu prófíl á stefnumótaappi, sem er einkum ætlað samkynhneigðu og tvíkynhneigðu fólki, og þóttust vera 24 ára samkynhneigður karlmaður sem væri að leita að körlum til að stunda kynlíf með.

Þeir sem gengu í gildruna voru barðir, niðurlægðir, myndaðir og eins og áður sagði var einn þeirra skotinn í höfuðið með loftbyssu.

TV2 Fyn skýrir frá þessu og segir að mál piltanna sé nú fyrir dómi hjá undirrétti í Óðinsvéum í Danmörku.

Í ákærunni kemur fram að í september 2024 hafi piltarnir notað stefnumótaappið Romeo til að mæla sér mót við þrjá samkynhneigða karla og hafi hitt þá alla á einni klukkustund. Þegar þeir hittu þann fyrsta börðu þeir hann, spörkuðu í hann og hótuðu honum lífláti. Þeir eru einnig ákærðir fyrir að hafa slegið hann með hlut sem líktist skammbyssu og að hafa kallað hann barnaníðing.

25 mínútum síðar hittu þeir næsta fórnarlamb. Þeir létu það leggjast á jörðina og lömdu síðan og spörkuðu og stöppuðu á höfði hans.  Þeir sökuðu hann um að vera barnaníðing.

Þriðja fórnarlambið var lamið með hafnaboltakylfu, slegið með belti og skotið í höfuðið með loftbyssu. Hann var einnig sakaður um að vera barnaníðingur. Hann hlaut nokkrar heilablæðingar af þessu ofbeldi og þurfti að sauma hann á nokkrum stöðum. Hann var meðvitundarlaus þegar piltarnir skildu við hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Tölfræðin sýnir að þessar 10 bílategundir endast lengur en 500.000 kílómetra

Tölfræðin sýnir að þessar 10 bílategundir endast lengur en 500.000 kílómetra
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Þess vegna vill hundurinn fylgja þér á klósettið

Þess vegna vill hundurinn fylgja þér á klósettið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hér má ekki lengur viðra hundinn sinn

Hér má ekki lengur viðra hundinn sinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Var bandaríska varnarmálaráðuneytið hakkað? Eða eru Rússar komnir með yfirráð yfir Bandaríkjunum?

Var bandaríska varnarmálaráðuneytið hakkað? Eða eru Rússar komnir með yfirráð yfir Bandaríkjunum?
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Hún fær að ráða og skyndilega fær hann ekki standpínu“

„Hún fær að ráða og skyndilega fær hann ekki standpínu“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Geta konur ratað?

Geta konur ratað?