fbpx
Miðvikudagur 18.júní 2025
Pressan

Er hollt að baða sig í ísköldu vatni eða sjó?

Pressan
Miðvikudaginn 18. júní 2025 18:30

Langisandur á Akranesi er vinsæl baðströnd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar maður vaknar á morgnana er það kannski ekki efst á óskalistanum að skella sér í ískalda sturtu en samt sem áður eru margir sem gera það. Það er útbreidd skoðun að það geri líkamanum gott að fara í ískalda sturtu. En ekki liggur ljóst fyrir hver heilsufarsáhrifin af þessu eru en fáar rannsóknir hafa verið gerðar á þessu.

Sum áhrif kaldra baða eru augljósari en önnur. Þegar kalt vatnið skellur á líkamanum styrkist ónæmiskerfi hans að sögn Susanna Søberg, doktorsnema, sem vinnur að rannsóknum á þessu. Í samtali við Jótlandspóstinn sagði hún að þegar líkaminn kemst í snertingu við kalt vatn losi hann sig við mikið magn hvítra blóðkorna. Það hafi áhrif á ónæmiskerfið og auki magn andoxunarefna sem hjálpa líkamanum að verjast veirum.

Kalda vatnið gerir einnig að verkum að mikið af efnum, sem gera fólk hresst og kátt, eru send til líkamans og heilans.

Köld sturta getur verið góð leið til að undirbúa sig undir vetrarböð í ísköldum sjó eða vötnum að sögn Søberg.

Christian Aalkjær, prófessor við líflæknisfræðideild Árósaháskóla, sagði að ekki hafi verið sýnt fram á að kaldar sturtur og vetrarböð séu góð fyrir heilsuna til langframa. Til að rannsaka þetta þurfi að gera stórar og umfangsmiklar rannsóknir sem standa yfir árum saman. Hann ráðleggur fólki með hjartasjúkdóma að sleppa ísköldum böðum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Svakaleg ný kenning um örlög Madeleine McCann

Svakaleg ný kenning um örlög Madeleine McCann
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný veira í Kína er bara „einu skrefi frá“ að skapa nýjan heimsfaraldur

Ný veira í Kína er bara „einu skrefi frá“ að skapa nýjan heimsfaraldur