Þetta gerði Musk í tilefni af umfjöllun New York Times á dögunum þar sem fram kom að hann hefði verið á kafi í neyslu lyfja og fíkniefna þegar hann tók þátt í kosningabaráttu Donald Trump.
Kom fram í umfjölluninni að hann hefði tekið inn svo mikið af ketamíni að það hefði haft áhrif á þvagblöðru hans. Þá var hann sagður hafa tekið inn alsælu og ofskynjunarsveppi. Áður hafði Wall Street Journal fjallað um meinta fíkniefnaneyslu hans.
Sjá einnig: Elon Musk sagður hafa verið á kafi í neyslu lyfja og fíkniefna í kosningabaráttu Trump
Í færslu á samfélagsmiðli sínum X birti hann niðurstöður þvagprófs sem framkvæmt var af fyrirtæki sem heitir Fastest Labs í Austin. Gáfu niðurstöðurnar til kynna að Musk hefði ekki neytt ketamíns og fjölda annarra efna síðustu daga að minnsta kosti.
Skoraði hann á New York Times og Wall Street Journal til að láta starfsmenn sína gangast undir samskonar próf og birta niðurstöðurnar opinberlega. „Þeir gera það ekki því þeir eru sekir eins og syndin,“ sagði hann.
Í frétt New York Magazine er bent á að prófið hafi verið tekið 12 dögum eftir að umfjöllun New York Times birtist en á vef fyrirtækisins sem tók prófið kemur fram að þvagprufa geti varpað ljósi á fíkniefnaneyslu síðustu 2 til 10 daga.
New York Times svaraði færslu Musks með þeim orðum að hann hafi ekki sýnt fram á neitt sem getur afsannað fréttaflutning blaðsins. Sagðist blaðið standa við umfjöllun sína frá því í lok maí.