fbpx
Fimmtudagur 12.júní 2025
Pressan

Segir börn sín ekki þekkja heimsþekktan heimilisvin

Pressan
Þriðjudaginn 10. júní 2025 12:07

Amal og George Clooney á Tony verðlaunahátiðinni sunnudaginn 8. júní. Mynd: Getty.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikarinn George Clooney gaf sjaldséða innsýn í líf og áhugamál barna sinna, tvíburana Ellu og Alexander, sem eru átta ára.

„Þau vilja sjá Taylor Swift,“ sagði leikarinn við E! News á Tony-verðlaunahátíðinni 2025 sunnudaginn 8. júní. Þar ræddi þar foreldrahlutverk sitt og eiginkonu sinnar, Amal Clooney.

Sagði hann börnin hafa lítinn áhuga og þekkingu á frægum vinum foreldrana.

„Það fyndna er að þau hafa ekki hugmynd. Robert DeNiro er til dæmis í heimsókn  og þau segja bara: „Hver ​​er þetta?“ Þeim er alveg sama.“

Clooney segir að þrátt fyrir þekkingarskort barnanna á heimsfrægum leikurum, þá séu þau bæði miklir aðdáendur Wicked. „Þau hlakka til seinni hlutans,“ sagði hann við fjölmiðla.

Amal og George Clooney á Tony verðlaunahátiðinni sunnudaginn 8. júní. Mynd: Getty.

George, sem var tilnefndur sem besti leikarinn fyrir aðalhlutverk sem Edward R. Murrow heitinn í Good Night, and Good Luck. Clooney þakkaði eiginkonu sinni fyrir stuðninginn á meðan hann lék á Broadway. „Ég á þennan ótrúlegu maka sem ég gæti ekki verið stoltari af. Hún er hugrakkasta manneskjan sem ég hef nokkurn tíma hitt á ævinni. Ég er innilega stoltur af henni og þeirri staðreynd að hún sé á einhvern hátt stolt af mér, ég trúi því varla hversu heppinn ég er.“

Good Night, and Good Luck var frumraun Clooney á Broadway. Leikritið, sem Clooney tók þátt í að aðlaga fyrir leiksvið, er byggt á samnefndri kvikmynd frá árinu 2005, þar sem Clooney lék einnig aðalhlutverk, sem framleiðandinn Fred W. Friendly.

Leikritið segir frá því þegar blaðamaðurinn Edward R. Murrow hjá CBS News afhjúpaði spillingu öldungadeildarþingmannsins Joseph McCarthy. David Strathairn, sem lék Murrow í myndinni, var tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir hlutverkið árið 2006.

Clooney fékk að hluta til innblástur til að taka að sér hlutverkið vegna starfa föður síns, Nicks Clooney, sem blaðamanns.

„Þetta virtist vera góður tími til að minna okkur á hversu mikilvæg blaðamennska er fyrir okkur öll og í hvaða hræðilega ástandi landið væri án fjórða valdsins,“ sagði Clooney við Vulture. „Ég held líka að þetta sé góður tími til að minna okkur þegar samfélagið var í sínu besta formi, þegar við stóðum upp gegn völdum og fólk gerði eitthvað mjög hugrakkt og óeigingjarnt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona fjarlægir þú rauðvínsbletti án þess að nota hreingerningarefni

Svona fjarlægir þú rauðvínsbletti án þess að nota hreingerningarefni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Stóð fyrir einu umtalaðasta svindli íþróttasögunnar – Hélt fast við framburð sinn allt til dauðadags

Stóð fyrir einu umtalaðasta svindli íþróttasögunnar – Hélt fast við framburð sinn allt til dauðadags
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þess vegna áttu aldrei að sofa í sokkum

Þess vegna áttu aldrei að sofa í sokkum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hafa verkjalyf minni áhrif á konur?

Hafa verkjalyf minni áhrif á konur?