Elon Musk þurfti að leiðrétta sína eigin gervigreind á samfélagsmiðli sínum X, en gervigreindin Grok hafði ranglega haldið því fram að skjáskot af meintri færslu auðkýfingsins væri raunveruleg.
Umrætt skjáskot átti að sýna meintar deilur á milli Elon Musk og eins nánasta ráðgjafa Donald Trump Bandaríkjaforseta, Stephen Miller. Á skjáskotinu virtist Musk hafa svarað færslu frá Miller með setningunni: „Alveg eins og hvernig ég tók konuna þína.“
Eiginkona Miller, Katie, starfaði fyrir Musk í hagræðingadeildinni DOGE. Hún starfaði þar sem ráðgjafi og talsmaður Musk. Katie lét af störfum fyrir hið opinbera á sama tíma og Musk og mun nú áfram vinna með honum á nýjum vettvangi. Fjótlega fóru svo gróusögur að ganga um að Musk og Katie hefðu verið að slá sér upp saman.
Notandi á X spurði Grok hvort Musk hefði í alvörunni birt þessa færslu og Grok svaraði að líklega hefði færslan verið raunveruleg en Musk hefði síðar eytt henni.
„Gögn benda til þess að færslan sé raunveruleg en að hún hafi verið fjarlægð, sem er í samræmi við þann vana Musk að eyða umdeildum færslum.“
Musk sá sig knúinn til að svara Grok og taka af öll tvímæli – skjáskotið var falsað.
„Nei, þetta er falsað, andskotinn hafi það. Ég birti þetta aldrei.“