Á sunnudaginn sagði Musk fylgjendum sínum á X að hann muni senda fimm geimför til Mars eftir tvö ár. „Að lokum verða mörg þúsund Starship geimför á leið til Mars og það verður mögnuð sjón!“ sagði hann.
Musk, sem styður Donald Trump, sagði að ef Demókrati sigrar í kosningunum muni það „eyðileggja áætlunina um að fara til Mars og dæma mannkynið“ með því að drekkja því í bönnum.
„Við munum aldrei komast til Mars ef Kamala sigrar,“ sagði hann fyrr í mánuðinum.
Donald Trump hefur tekið Marsferðir upp á arma sína í kosningabaráttunni að sögn Sky News. Á laugardaginn hét hann því að senda geimfar til Mars á valdatíð sinni ef hann sigrar í kosningunum. „Ég tala við Elon. Elon, sendu þessi geimför af stað,“ sagði hann.
Musk segist pirraður á hversu miklar tafir verða af völdum skriffinnsku og að skriffinnskan aukist árlega og haldi aftur af starfsemi SpaceX.
Hann sagði ef ómönnuð geimför hans komst heilu og höldnu til Mars, muni hann senda fólk þangað 2028. Hann hefur áður sagt að hann vilji koma upp sjálfbærri nýlendu fólks á Mars eftir 20 ár.