Málið varðar slæma meðferð á líkum eftir að fjöldi líka fannst rotnandi við stofuhita á útfararstofunni. Eigendur útfararstofunnar, hjónin Jon og Carie Hallford, voru sökuð um slæma meðferð á 190 líkum og í einhverjum tilfellum látið aðstandendur fá ösku sem var af einhverju allt öðru en ástvinum þeirra.
Það voru aðstandendur sem höfðuðu mál gegn hjónunum og hefur dómstóll nú komist að þeirri niðurstöðu að hjónunum beri að greiða fyrrgreinda upphæð – sem gæti vel farið yfir milljarð dollara þegar vextir hafa reiknast ofan á.
Litlar sem engar líkur eru á því að hjónin geti reitt fram þessa upphæð, en lögmaðurinn sem fór alla leið með málið, Andrew Swan, segir við bandaríska fjölmiðla að dómurinn sé táknrænn og sendi skýr skilaboð um að hegðun sem þessi verður ekki liðin.
Bandaríska alríkislögreglan, FBI, segir að útfararstofan hefði haft nægar tekjur til að standa rétt að málum en þeir peningar sem komu inn í reksturinn hafi farið í persónuleg útgjöld þeirra hjóna.
Útfararstofan hóf starfsemi árið 2017 og markaðssetti sig þannig að um vistvæna og náttúrulega greftrunarþjónustu væri að ræða.