Það sem gerðist er að það fraus ekki einn einasta dag allan mánuðinn og er það í fyrsta sinn í 129 ár sem maí er frostlaus.
Hitinn fór lægst í 1,1 gráðu og því var maí 2024 fyrsti frostlausi maímánuðurinn frá 1895.
Mánuðurinn var óvenjulega hlýr en miðhitastigið var 14,4 gráður. Aðeins einu sinni áður hefur miðhitastigið verið hærra en það var 2018 en þá var það 15 gráður.
Ástæðan fyrir þessum hlýja mánuði er að í aðeins fjóra daga blés kaldur vindur úr norðri og á sama tíma var sjórinn í kringum landið óvenjulega hlýr.