Fyrra undanúrslitakvöldið fer fram næstkomandi þriðjudag og það síðasta á fimmtudag. Sjálft úrslitakvöldið verður svo laugardaginn 11. maí.
Þátttaka Ísraels í keppninni hefur valdið þó nokkrum titringi enda hefur stríðsástand ríkt á Gaza frá því í október þar sem þúsundir manna hafa látist.
ISIS-K, einskonar undirhópur ISIS-samtakanna alræmdu, hafa látið á sér kræla í Evrópu að undanförnu en tæpir tveir mánuðir eru síðan tveir liðsmenn samtakanna voru handteknir í Þýskalandi vegna gruns um að leggja á ráðin um hryðjuverk í Svíþjóð.
Búið er að skipuleggja mótmæli í Malmö, þar sem keppnin fer fram, sama dag og framlag Ísraels verður flutt næstkomandi fimmtudag. Þá er einnig búið að skipuleggja mótmæli þegar úrslitakvöldið fer fram.
Ísraelsk yfirvöld hvetja ísraelska þegna til að halda sig fjarri tónleikahöllinni í Malmö vegna upplýsinga sem sagðar eru byggðar á traustum grunni um hættu á yfirvofandi hryðjuverki. Hvetja þau þegna sína sem fara til Svíþjóðarl að sækja sérstakt app þar sem varað verður við yfirvofandi eða yfirstandandi árásum. Þetta sama app hefur verið notað til að vara fólk við flugskeytaárásum sem beinast að Ísrael.