fbpx
Föstudagur 26.júlí 2024
Fréttir

Óvæntur gestur á íslenskum heimilum: Segir fólk fyllast ótta og jafnvel vilja selja húsið sitt

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 16. maí 2024 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þvert á það sem margir kynnu að halda eru maurar til á Íslandi og hafa fundist hér hvorki fleiri né færri en 25 tegundir. Nú er komin út barnabók um hulinn heim íslenskra maura en bókin er eftir líffræðinginn Marco Mancini og Laufeyju Jónsdóttur myndskreyti.

Fjallað er um þetta í Morgunblaðinu í dag og þar segir Marco að honum finnist áríðandi að fræða börn um þá staðreynd að maurar eru til á Íslandi.

Marco segir í viðtalinu að áður en hann flutti til Íslands hafi hann lesið vísindagrein þar sem fram kom að maurar væru úti um allan heim, nema á Suðurskautslandinu og Íslandi. En þetta er ekki rétt og eru fjórar maurategundir viðvarandi hér á landi; húsamaur, blökkumaur, faraómaur og draugamaur.

Marco segir að ef maurar berast til landsins með frjósamri drottningu þá setjast þeir hér að og fjölga sér.

„Ef þeir hafa hita og mat, þá fjölgar þeim hratt, á einum mánuði frá tuttugu maurum yfir í þúsund,“ segir hann við Morgunblaðið og segir að maurar haldi til dæmis til í kringum hitaveitulagnir þar sem er rakt og heitt.

Hann bendir svo á að fólk kaupir lifandi blóm, til dæmis í Costco eða Ikea, en sjái ekki maura sem eru mögulega í moldinni. „Um nætur fara nokkrir vinnumaurar á stjá og finna smugu til dæmis í parketinu. Þeir sækja fleiri maura í pottinn og flytja á endanum allir undir parketið,“ segir hann í viðtalinu og bætir við að smám saman stækki veldi maurana.

Marco vill gjarnan fá að vita af því ef fólk finnur maura heima hjá sér og vill vera meindýraeyðum innan handar við að losna við þá.

„Stundum þegar ég hef komið heim til fólks vegna maura sem þar finnast, þá fyllist fólk ótta og vill jafnvel selja húsið sitt, en það er algjör óþarfi,“ segir hann og nefnir að það sé engin skömm að lenda í því að fá maura í heimsókn. Tilvist þeirra hafi þó ekkert með hegðun fólks að gera.

Nánar er rætt við Marco í Morgunblaðinu í dag en einnig má nálgast upplýsingar um maura á Íslandi á þessum vef hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Bjórinn í Reykjavík dýrastur í Evrópu – Fjórði dýrasti í heiminum samkvæmt bjórkorti

Bjórinn í Reykjavík dýrastur í Evrópu – Fjórði dýrasti í heiminum samkvæmt bjórkorti
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Eigendur lúxusíbúða skoruðu sigur gegn vinsælum pílustað – Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fær á baukinn

Eigendur lúxusíbúða skoruðu sigur gegn vinsælum pílustað – Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fær á baukinn
Fréttir
Í gær

Bræður ráku pabba sinn úr fjölskyldufyrirtækinu í Grindavík – Ásakanir á víxl um tug milljóna fjárdrátt

Bræður ráku pabba sinn úr fjölskyldufyrirtækinu í Grindavík – Ásakanir á víxl um tug milljóna fjárdrátt
Fréttir
Í gær

Húseigandi í miðbænum grunlaus um heimild fyrir byggingu íbúðarhúss á lóð hans – Reyndi að kæra en var of seinn

Húseigandi í miðbænum grunlaus um heimild fyrir byggingu íbúðarhúss á lóð hans – Reyndi að kæra en var of seinn
Fréttir
Í gær

Siggi stormur furðulostinn yfir athæfi ferðamanna

Siggi stormur furðulostinn yfir athæfi ferðamanna
Fréttir
Í gær

Guðmunda hefur aldrei gleymt ungu stúlkunni sem sagði henni leyndarmál – „Oft fellt tár hennar vegna“

Guðmunda hefur aldrei gleymt ungu stúlkunni sem sagði henni leyndarmál – „Oft fellt tár hennar vegna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tveir ókunnugir menn voru skráðir á heimili hennar – Ekki þarf að fá samþykki eiganda eignarinnar

Tveir ókunnugir menn voru skráðir á heimili hennar – Ekki þarf að fá samþykki eiganda eignarinnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rússar bjóða íbúum Moskvu milljónir í vasann fyrir að skrá sig í herinn

Rússar bjóða íbúum Moskvu milljónir í vasann fyrir að skrá sig í herinn