fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
Pressan

Fundu lík í ruslagámi við kirkju

Pressan
Fimmtudaginn 30. mars 2023 21:00

Versey Spell. Mynd:Baltimore Police Department/Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrr í mánuðinum fannst lík Versey Spell, 75 ára, í ruslagámi við kirkju í Baltimore. Lögreglan segir að hún hafi verið myrt en hefur ekki skýrt frá dánarorsökinni.

Spell hafði verið saknað síðan 19. október. Þá sagði lögreglan í eftirlýsingu að hún væri „viðkvæm fullorðin manneskja“ sem notast þyrfti við göngugrind eða staf til að komast ferða sinna.

Fjölskylda hennar telur að hún hafi horfið við dularfullar kringumstæður. Heimili hennar var í mikilli óreiðu og búið var að sparka kjallaradyrunum upp.

Lík hennar fannst 3. mars í gámi í rúmlega kílómetra fjarlægð frá þeim stað þar sem síðast sást til hennar á lífi. CBS News skýrir frá þessu.

Lögreglan hefur ekki veitt neinar upplýsingar um hugsanlega ástæðu morðsins eða hvort einhver liggi undir grun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Kyle Walker í Burnley
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sex Bandaríkjamenn handteknir – Reyndu að senda hrísgrjón og biblíur til Norður-Kóreu

Sex Bandaríkjamenn handteknir – Reyndu að senda hrísgrjón og biblíur til Norður-Kóreu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Nýr ferðamannaskattur vekur reiði – Borgaðu fyrir útsýnið

Nýr ferðamannaskattur vekur reiði – Borgaðu fyrir útsýnið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Vopnahléi Musk og Trump er heldur betur lokið og auðkýfingurinn hótar öllu illu

Vopnahléi Musk og Trump er heldur betur lokið og auðkýfingurinn hótar öllu illu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Milljarðaverðmæti í gulli eru geymd undir New York – Nú þurfa eigendurnir kannski að flytja það heim

Milljarðaverðmæti í gulli eru geymd undir New York – Nú þurfa eigendurnir kannski að flytja það heim