fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
Pressan

Tannlæknir grunaður um að hafa myrt eiginkonu sína – Færði henni blásýrusjeik til að geta byrjað nýtt líf með kollega

Pressan
Miðvikudaginn 22. mars 2023 22:00

Craig-hjónin, Angela og James. Þau áttu saman sex börn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tannlæknirinn James Toliver Craig, frá Denver í Colorado-fylki í Bandaríkjunum, er í haldi lögreglu grunaður um að hafa ráðið eiginkonu sinni, Angelu, bana. Er James sagður hafa komið fyrir eitri í prótínsjeikum sem eiginkonan lagði sér reglulega til munns og það hafi orðið henni að aldurtila. Hjónin áttu sex börn saman en talið er að tannlæknirinn svívirðilegi hafi ætlað sér að hefja nýtt líf með ástkonu sinni sem er svæfingarlæknir. Breski miðillinn Guardian greinir frá.

Banameinið reyndist vera blásýra

Ódæðið átti sér stað í síðustu viku en þá komu Craig-hjóninn á spítala í Denver vegna veikinda Angelu. Hún hafði kvartað undan slæmum höfuðverkjum og svima en James skutlaði henni á spítalann. Ástand Angelu fór ört versnandi og eftir að læknar höfðu neyðst til þess að setja hana í öndunarvél var hún úrskurðuð látin nokkru síðar.

Veikindi Angelu þóttu grunsamleg og fljótlega kölluðu starfsmenn spítalans til lögreglu enda var farinn að leika grunur á um að eitthvað misjafnt hefði átt sér stað. Hún hafði dáið af blásýrueitrun.

Böndin beinast að eiginmanninum

Böndin bárust fljótt að eiginmanninum og fljótlega kom í ljós að hann hafði pantað hylki af blásýru á læknastofu sína nokkru fyrir dauðsfall Angelu. Sú uppgötvun var gerð því að samstarfsmaður James þótti pöntunin undarleg og sá sig knúinn til að tilkynna málið til lögreglu.  Þá kom einnig í ljós að James hafði leitað eftir upplýsingum á netinu um hvernig ætti að koma einhverjum fyrir kattarnef án þess að neinn grunur kviknaði.

Þegar lögreglumenn fengu heimild til að skoða síma James kom í ljós fjölmörg klúr skilaboð til konu í Texas sem var menntuð í tannréttingum. Sú hafði meðal annars gert sér ferð til Denver á meðan Angela lá banaleguna.

Að lokum þóttu sönnunargögnin orðin næg og var James handtekinn á heimilinu sínu síðastliðinn sunnudag. Í umfjöllun Guardian kemur meðal annars fram að James hafi haldið því fram að Angela hafi glímt við sjálfsvígshugsanir og hann því aðstoðað hana við að enda jarðvist sína.

Þegar loks verður réttað yfir James Toliver Craig má hann búast við lífstíðarfangelsi fyrir glæp sinn.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona styrkir þú þarmaflóruna með einfaldri breytingu á mataræðinu

Svona styrkir þú þarmaflóruna með einfaldri breytingu á mataræðinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ráðgátan í Thuleherstöðinni – Hvað varð um Jytte?

Ráðgátan í Thuleherstöðinni – Hvað varð um Jytte?
Pressan
Fyrir 3 dögum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Trump urðar yfir æðstaklerk Írans – „ÉG BJARGAÐI HONUM“

Trump urðar yfir æðstaklerk Írans – „ÉG BJARGAÐI HONUM“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Trump illa sáttur með gælunafnið sem framkvæmdastjóri NATO gaf honum – „Pabbi er kominn heim“

Trump illa sáttur með gælunafnið sem framkvæmdastjóri NATO gaf honum – „Pabbi er kominn heim“
Pressan
Fyrir 4 dögum

FBI á tánum vegna „sofandi“ íranskra hryðjuverkahópa

FBI á tánum vegna „sofandi“ íranskra hryðjuverkahópa
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þessi kynlífsráð geta (kannski) bjargað sambandinu

Þessi kynlífsráð geta (kannski) bjargað sambandinu