fbpx
Þriðjudagur 01.júlí 2025
Pressan

Lena skýrir frá Facebook-brellunni sem hjálpaði henni að léttast um 12 kg

Pressan
Sunnudaginn 19. mars 2023 19:00

Lena léttist um 12 kg með Facebookaðferðinni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir reyna hina ýmsu megrunarkúra og aðferðir til að reyna að losna við aukakílóin. Þar má nefna LKL, Ketó og föstu.

En það er spurning hvort það gefi betri árangur að nota Facebookaðferðina. Samkvæmt niðurstöðu rannsóknar, sem vísindamenn við háskólann í Halmstad í Svíþjóð gerðu, þá léttast þeir, sem birta reglulegar færslur um þyngdartap sitt á Facebook, að meðaltali 20% meira en aðrir. Aftonbladet skýrir frá þessu.

400 manns tóku þátt í rannsókninni, sem stóð yfir í þrjá mánuði. Helmingurinn birti færslur á Facebook um glímu sína við aukakílóin en hinn helmingurinn skrifaði ekkert um það.

Ulf Agerup, einn vísindamannanna, sagði að niðurstaða rannsóknarinnar sé að þeir sem skrifa um þyngdartap sitt á Facebook léttist meira en þeir sem gera það ekki. Fyrir allan hópinn hafi munurinn verið 20%. Þessi helmingur sé einnig ánægðari með þyngdartapið en hinn helmingurinn.

Lena, sem tók þátt í rannsókninni, tók undir þetta. Hún birti mynd af sér, sem var tekin áður en tilraunin hófst, og síðan aðra að henni lokinni. Þegar tilrauninni var lokið skoðaði hún myndina og var mjög sátt við árangurinn sem hún náði.

„Ég er sannfærð um að hvatning og „likes“ frá Facebookvinum mínum hafi hjálpað mér að léttast um 12 kg á þremur mánuðum,“ sagði hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona styrkir þú þarmaflóruna með einfaldri breytingu á mataræðinu

Svona styrkir þú þarmaflóruna með einfaldri breytingu á mataræðinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ráðgátan í Thuleherstöðinni – Hvað varð um Jytte?

Ráðgátan í Thuleherstöðinni – Hvað varð um Jytte?
Pressan
Fyrir 3 dögum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Trump urðar yfir æðstaklerk Írans – „ÉG BJARGAÐI HONUM“

Trump urðar yfir æðstaklerk Írans – „ÉG BJARGAÐI HONUM“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Trump illa sáttur með gælunafnið sem framkvæmdastjóri NATO gaf honum – „Pabbi er kominn heim“

Trump illa sáttur með gælunafnið sem framkvæmdastjóri NATO gaf honum – „Pabbi er kominn heim“
Pressan
Fyrir 4 dögum

FBI á tánum vegna „sofandi“ íranskra hryðjuverkahópa

FBI á tánum vegna „sofandi“ íranskra hryðjuverkahópa
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þessi kynlífsráð geta (kannski) bjargað sambandinu

Þessi kynlífsráð geta (kannski) bjargað sambandinu