fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Pressan

Morðgátan dularfulla í Ölpunum árið 2012 – Ungar systur lifðu einar af og hafa nú skýrt frá hvað gerðist

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 28. júlí 2022 05:57

Morðvettvangurinn. Mynd: EPA/Norbert FALCO/LE DAUPHINE FRANCE OUT

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir 10 árum var bresk/írösk fjölskylda á ferðalagi um Frönsku Alpana. Á fáförnum vegi nærri Annecy-vatninu voru þrír úr fjölskyldunni myrtir, nánast teknir af lífi, en tvær ungar stúlkur sluppu lifandi. Franskur reiðhjólamaður var einnig myrtur. Málið er mjög dularfullt og óhætt að segja að það sé eitt dularfyllsta sakamál Frakklands á síðari árum og jafnvel áratugum.

Zainab al-Hilli var sjö ára þegar þetta gerðist. Hún og fjögurra ára systir hennar, Zeena, voru á ferðalagi með foreldrum sínum og móðurömmu þegar þau voru skotin til bana 5. september 2012. Morðinginn skaut síðan reiðhjólamann til bana og flúði síðan af vettvangi, líklega á mótorhjóli.

Það voru aðeins Zainab og Zeena sem lifðu af.

Le Parisien segir að Zainab, sem nú er 16 ára, hafi gefið svo nákvæma skýrslu hjá lögreglunni að hún hafi nú öðlast nákvæmari mynd af hvað gerðist.

Fjölskyldan bjó í Lundúnum en var í fríi í Frakklandi og ók upp í Alpana til að njóta útsýnisins. Þau óku í BMW skutbíl. Fjölskyldufaðirinn Saad, 50 ára, eiginkona hans Iqbal, 47 ára, og móðir hennar Suhaila, 74 ára, og systurnar tvær.

Á fáförnu stæði lét morðinginn til skara skríða. Talið er líklegt að hann hafi á tæpum 90 sekúndum skotið 21 skoti úr gamalli 7,65 mm Lugerskammbyssu.

Skotin í bílnum

Saad var skotinn í ennið og féll yfir stýrið. Tengdamóðir hans var í aftursætinu og var einnig skotin í höfuðið. Iqbal lést einnig í aftursætinu.

Le Parisien segir að samkvæmt því sem kemur fram í yfirheyrsluskýrslum yfir Zainab hafi hún verið að stíga út úr bílnum með föður sínum þegar hún sá reiðhjólamann. Síðan heyrði hún skot. Foreldrar hennar reyndu þá að koma henni aftur inn í bílinn en það tókst ekki áður en maður greip hana aftan frá.

Hún hélt í fyrstu að þetta væri faðir hennar en sá síðan hvíta húð mannsins og áttaði sig á að þetta gæti ekki verið faðir hennar. Maðurinn var í leðurjakka og síðbuxum.

Frá Frönsku Ölpunum. Mynd:Wikimedia Commons

 

 

 

 

 

 

Zainab fékk skot í öxlina og var síðan slegin í höfuðið með byssuskeftinu. Talið er að morðinginn hafi orðið uppiskroppa með skot og það hafi orðið henni til lífs. En áður en hann varð uppiskroppa með skot, skaut hann Sylvain Mollier, reiðhjólamann.

Það var breskur reiðhjólamaður sem kom fyrstur á vettvang og fann Zainab illa særða. Ekkert símasamband var á vettvangi og því lagði hann Zainab í læsta hliðarlegu og hjólaði síðan niður fjallið til að sækja hjálp.

Eftir átta klukkustunda vettvangsrannsókn hófst lögreglan handa við að fjarlægja líkin. Þá fannst Zeena sem hafði falið sig undir kjól móður sinnar fyrir framan aftursætið. Hún var ómeidd en í miklu áfalli.

Bíll fjölskyldunnar fluttur á brott. Mynd: EPA/SALVATORE DI NOLFI

 

 

 

 

 

 

Allt frá þessum degi hefur fólk velt fyrir sér hver hafi verið skotmark morðingjans – fjölskyldan eða Sylvain Mollier? Og ekki síður: Af hverju?

Helstu kenningarnar sem hafa verið uppi eru:

Að Zaid, bróðir Saad, hafi staðið á bak við morðin vegna deilna um arf.

Að Saad hafi tengst iðnaðarnjósnum en hann starfaði hjá tæknifyrirtæki.

Að óþekkt tengsl Saad við Írak hafi verið ástæðan.

Að Sylvain Mollier hafi verið skotmarkið vegna fjölskyldudeilna.

Að klikkaður maður hafi verið að verki og að tilviljun hafi ráðið því hver fórnarlömb hans urðu.

Því hefur verið haldið fram að morðinginn geti verið allt frá því að vera geðsjúkur maður til þess að vera leigumorðingi.

Einnig hafa enn ótrúlegri kenningar komið fram eins og DV fjallaði um:

Dularfullu morðin í Ölpunum – Tengjast frímúrarar þeim?

Lögreglan hefur yfirheyrt mikinn fjölda fólks í Frakklandi og utan Frakklands og einnig hafa nokkrir verið handteknir vegna rannsóknarinnar.

Handataka vegna dularfullu morðanna í Frönsku Ölpunum fyrir 10 árum

 

Þrátt fyrir mikla rannsóknarvinnu frönsku lögreglunnar og aðstoð frá 14 löndum hefur ekki tekist að leysa málið. Þrír lögreglumenn vinna enn að rannsókn þess.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði
Pressan
Fyrir 2 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sumar stjörnur gætu verið „sýktar“ af svartholum sem eyðileggja þær innan frá

Sumar stjörnur gætu verið „sýktar“ af svartholum sem eyðileggja þær innan frá
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mörg þúsund loftsteinar gætu glatast að eilífu þar sem þeir sökkva niður í ísinn á Suðurskautinu

Mörg þúsund loftsteinar gætu glatast að eilífu þar sem þeir sökkva niður í ísinn á Suðurskautinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Nokkrar mýtur um kvef, hálsbólgu og flensu

Nokkrar mýtur um kvef, hálsbólgu og flensu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tunglið fær sitt eigið tímabelti

Tunglið fær sitt eigið tímabelti