TT fréttastofan skýrir frá þessu. Þróunin í þessum málum hefur verið ógnvænleg og hröð í Svíþjóð. Árið 2012 voru 17 skotnir til bana í landinu. 2020 var met slegið þegar 47 voru skotnir til bana, það er metið sem nú hefur verið slegið. Á síðasta ári voru 45 skotnir til bana.
Um 10,3 milljónir búa í Svíþjóð. Til samanburðar má nefna að í Danmörku búa um 5,8 milljónir en þar voru átta skotnir til bana á síðasta ári.
Ein af ástæðunum fyrir öllum þessum morðum er að glæpagengin eru reiðubúin til að beita mun meira ofbeldi en áður. Áður létu þau nægja að skjóta meðlimi annarra glæpagengja í fótlegg eða lömdu viðkomandi í spað. En nú reyna þau miklu frekar að skjóta fólk til bana.
Poul Kellberg, afbrotafræðingur og forstjóri Comeback samtakanna, segir að Svíar hafi ekki horfst í augu við vandann vegna glæpagengja fyrr en það var um seinan. Þetta séu lítil samfélög sem loki sig af og setji sér sínar eigin reglur um réttlæti.
Þróunin hefur gert að verkum að í mörgum hverfum í borgum á borð við Stokkhólm og Malmö er ástandið mjög slæmt og nú hefur ný ríkisstjórn landsins ákveðið að grípa til harðra aðgerða til að takast á við vandann sem stafar af glæpagengjunum.
Ein af aðgerðum ríkisstjórnarinnar er nýr öryggispakki sem var kynntur skömmu fyrir jól. Samkvæmt honum fær lögreglan auknar heimildir til að ákveða að henni sé heimilt að gera líkamsleit á hverjum sem er sem heldur sig á ákveðnum afmörkuðu svæði, þetta getur til dæmis átt við heilt hverfi. Einnig er lagt til að fólk geti borið vitni fyrir dómi án þess að koma fram undir nafni.
Tillögurnar í þessum pakka eru nú til skoðunar og mat verður lagt á hvort þær séu raunhæfar.