fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
Pressan

5 ára hringdi í Neyðarlínuna – Hafði aldrei áður fengið símtal eins og þetta

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 3. desember 2022 17:00

Savannah Hensley

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Versta martröð allra foreldra er að eitthvað komi fyrir börnin þeirra en þegar fullorðnir eru einir með barn eða börnum læðist sú hugsun væntanlega seint að þeim að eitthvað geti komið fyrir þá sjálfa. En líkurnar á því eru kannski ekki minni en að eitthvað komi fyrir barnið.

Hjartaáfall, heilablóðfall eða slys eru meðal þess sem getur gerst þegar maður á síst von á. En hvað gera börnin ef eitthvað þessu líkt gerist?

Neyðarvörðurinn Jason Bonham, sem starfar hjá bandarísku neyðarlínunni 911, gleymir aldrei símtali sem hann svaraði fyrir mörgum árum. Þá hringdi Savannah Hensley, fimm ára, og sagði að faðir hennar ætti erfitt með andardrátt og þyrfti að fá hjálp strax.

Svo ótrúlegt sem það kann að hljóma þá var Savannah mjög róleg og yfirveguð og svaraði spurningunum sem Bonham lagði fyrir hana. Hún kannaði með ástand föður síns, Frank, og sagði að hann gæti ekki talað.

Bonham sagði síðar að hann hafi verið hissa en um leið hafi honum létt við af hversu mikilli yfirvegun Savannah tók á málinu.

Hún veitti greinargóðar upplýsingar um ástand föður síns og tók útidyrnar úr lás til að sjúkraflutningsmenn kæmust inn.

En hún hafði líka áhyggjur af öðru og því gleymir Bonaham aldrei. „Við erum í náttfötum . . . og ég er í náttkjól. Ég verð að gera mig klára. Ég veit ekki í hverju ég á að vera en hann hefur virkilega mikla þörf fyrir súrefni, mjög fljótt,“ sagði hún.

Eftir að hún hafði fullvissað Bonham um að hún myndi vera við hlið föður síns og tala við hann sagði hún honum frá fjölskylduhundinum Lou: „Við eigum hund . . . hann er mjög lítill.“

Hún hafði auga með föður sínum þar til sjúkraflutningsmenn komu á vettvang. Þeir gátu veitt honum nauðsynlega aðstoð og allt endaði þetta vel.

Hér fyrir neðan er hægt að heyra símtalið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Hryllingur í Þýskalandi – Mætti með hníf í vinnuna og réðst á starfssystkini

Hryllingur í Þýskalandi – Mætti með hníf í vinnuna og réðst á starfssystkini
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Ávanabindandi“ ástarsambönd Clint Eastwood rakin í nýrri ævisögu: „Ég ætlaði að gera eins og mér sýndist“

„Ávanabindandi“ ástarsambönd Clint Eastwood rakin í nýrri ævisögu: „Ég ætlaði að gera eins og mér sýndist“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Miðinn í ruslinu breytti lífi hennar

Miðinn í ruslinu breytti lífi hennar
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hetjuleg björgun föður – Stökk á eftir dóttur sinni sem féll frá borði

Hetjuleg björgun föður – Stökk á eftir dóttur sinni sem féll frá borði
Pressan
Fyrir 4 dögum

Flugfreyja segir að flugáhafnir stundi kynlíf í flugstjórnarklefanum – „Vélin er á sjálfstýringu“

Flugfreyja segir að flugáhafnir stundi kynlíf í flugstjórnarklefanum – „Vélin er á sjálfstýringu“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Harmleikur á Englandi: 12 ára drengur látinn eftir samfélagsmiðlaáskorun

Harmleikur á Englandi: 12 ára drengur látinn eftir samfélagsmiðlaáskorun