fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Pressan

Sífellt fleiri ungir COVID-19-sjúklingar enda á gjörgæsludeildum

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 31. mars 2021 11:00

Kórónuveira. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frakkland er nú í miðri þriðju bylgju heimsfaraldursins og álagið á heilbrigðiskerfi landsins er mikið. Eitt af því sem veldur miklum áhyggjum er að sífellt fleira ungt fólk er lagt inn á gjörgæsludeildir vegna alvarlegra COVID-19 veikinda.

Læknar tóku eftir þessari þróun í upphafi árs og síðan þá hefur hlutfall ungra sjúklinga aukist. Sérfræðingar hafa spurt sig hvort þetta sé eðlileg afleiðing af því að sífellt fleira eldra fólk er bólusett og að veiran breiðist því frekar út í öðrum aldurshópum? Þá er einnig spurt hvaða hlutverki breska afbrigði veirunnar gegni í þessu?

Antoine Viellard-Baron, yfirmaður gjörgæsludeildar Ambroise-Paré sjúkrahússins í París sagði í samtali við Le Monde að síðustu 10 daga hafi rúmlega 40% sjúklinga á gjörgæsludeildinni verið yngri en 60 ára. Það sé miklu hærra hlutfall en í fyrri bylgjum faraldursins þar sem það var um 30%. Þetta sagði hann um miðjan mars og nú hefur staðan versnað enn frekar að sögn blaðsins því nú er um helmingur sjúklinganna yngri en 60 ára.

Tölur frá heilbrigðisyfirvöldum sýna einnig að almennt hefur innlögnum 15-44 ára fjölgað og að sífellt fleiri, yngri en 64 ára, veikist alvarlega.

Sérfræðingar telja að ein augljósasta skýringin á þessu sé að þar sem svo margir í elstu hópum þjóðfélagsins hafi verið bólusettir sé veiran frekar á sveimi í öðrum aldurshópum. Læknar eru einnig þeirrar skoðunar að breska afbrigðið skipti hér máli. „Eina skýringin sem ég sé er breska afbrigðið,“ sagði Yves Cohen, yfirmaður gjörgæsludeildar sjúkrahúss í Bobigny í útjaðri Parísar í samtali við Le Monde.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Rex Heuermann hefur játað á sig átta morð – En hvað með hin líkin á Gilgo-ströndinni?

Rex Heuermann hefur játað á sig átta morð – En hvað með hin líkin á Gilgo-ströndinni?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald
Pressan
Fyrir 3 dögum

Lögreglukona svipti sig lífi nokkrum mánuðum eftir að eiginmaðurinn var myrtur – ekki var þó allt sem sýndist

Lögreglukona svipti sig lífi nokkrum mánuðum eftir að eiginmaðurinn var myrtur – ekki var þó allt sem sýndist
Pressan
Fyrir 4 dögum

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Starfsmaður í dagvistun ákærður – Sló tvo unga sofandi drengi

Starfsmaður í dagvistun ákærður – Sló tvo unga sofandi drengi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Farþegum fjölgaði um einn í háloftunum – Fæddi hálftíma fyrir lendingu

Farþegum fjölgaði um einn í háloftunum – Fæddi hálftíma fyrir lendingu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Settu eitt kíló af salti undir rúmið í nótt – Þetta er ástæðan

Settu eitt kíló af salti undir rúmið í nótt – Þetta er ástæðan
Pressan
Fyrir 5 dögum

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var