fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Pressan

Prófessor segir að Ómíkronsmitbylgjan í Suður-Afríku virðist hafa náð hámarki

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 14. desember 2021 07:05

Heilbrigðisstarfsfólk er sem betur fer almennt ekki að myrða sjúklingana. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Smittölur og hlutfallstölur varðandi fjölda Ómíkronsmita af heildarfjölda kórónuveirusmita í Suður-Afríku benda til að þar hafi smit af völdum afbrigðisins náð hámarki að sinni. Gögn um alvarleika afbrigðisins í Suður-Afríku eru einnig jákvæð.

Þetta segir Pieter Streicher, prófessor og sérfræðingur í greiningu veira, við háskólann í Jóhannesarborg,  í færslu á Twitter. Hann segist telja að út frá fyrirliggjandi tölum muni faraldurinn ná hámarki í Gauteng á milli 10. og 20. desember.

Augu sérfræðinga hafa beinst sérstaklega að Gauteng síðustu vikur eftir að Ómíkron kom fram á sjónarsviðið. Gauteng er fyrsta svæðið þar sem faraldur Ómíkronsmita skall á. Þar er fjöldi daglegra smita við að ná jafnvægi eftir að hafa tæplega fimmtíufaldast á nokkrum vikum. Einnig fer innlögnum á sjúkrahús nú fækkandi í héraðinu, þar er Jóhannesarborg, sem og hlutfall jákvæðra sýna af heildarfjölda sýna.

„Í Evrópu óttast margir að Ómíkron muni smita allt að 70% íbúa. En Ómíkron mun aðeins ná að sýkja á milli 15-25% íbúa Suður-Afríku og við erum aðeins með vægar sóttvarnaaðgerðir,“ skrifaði Streicher á Twitter. Þær vægu sóttvarnaaðgerðir sem hann nefnir eru að útgöngubann er á milli klukkan 24 og 04.

Vísindamenn eru almennt þeirrar skoðunar að Ómíkron séu miklu meira smitandi en önnur afbrigði veirunnar en eru einnig þeirrar skoðunar að enn sé of snemmt að álykta um alvarleika smita af völdum afbrigðisins því enn liggi ekki nægilega mikið fyrir af gögnum um veikindi þeirra sem hafa náð sér af smiti.

Gögn frá suðurafrísku heilbrigðisyfirvöldum frá í gær um sjúkrahúsinnlagnir af völdum Ómíkron sýna að færri hafa þurft að leggjast inn vegna alvarlegra veikinda og dauðsföll eru færri en í fyrri bylgjum faraldursins. Rétt er að hafa í huga að tæplega fjórðungur Suðurafríkubúa er bólusettur. Heilbrigðisyfirvöld geta þó ekki sagt með vissu til um fjölda dauðsfalla af völdum Ómíkron þar sem dauðsföll eru ekki skráð út frá hvaða afbrigði af veirunni fólk var smitað af.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Hrikalegt ástand í Dúbaí: Allt á floti og lúxusbílar á bólakafi

Hrikalegt ástand í Dúbaí: Allt á floti og lúxusbílar á bólakafi
Pressan
Í gær

Þessi vinsæli drykkur er verri en kaffi þegar kemur að því að valda andvöku

Þessi vinsæli drykkur er verri en kaffi þegar kemur að því að valda andvöku
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fundu bát sem var fullur af rotnandi líkum

Fundu bát sem var fullur af rotnandi líkum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kannabis er orðið að milljarðaiðnaði í Bandaríkjunum – Hvaða áhrif hefur efnið á heilsu fólks?

Kannabis er orðið að milljarðaiðnaði í Bandaríkjunum – Hvaða áhrif hefur efnið á heilsu fólks?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hversu oft þværðu ræktarfötin? – Þessu flaska flestir á

Hversu oft þværðu ræktarfötin? – Þessu flaska flestir á
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tæpu ári eftir handtökuna er ritari Heuermann ekki enn komin yfir áfallið – „Ég keypti þessar pitsur fyrir hann“

Tæpu ári eftir handtökuna er ritari Heuermann ekki enn komin yfir áfallið – „Ég keypti þessar pitsur fyrir hann“