fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Jólahlaðborðið sem augu heimsins beinast að – Gæti skipt sköpum varðandi viðbrögðin við Ómíkron

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 10. desember 2021 08:18

Veitingastaðurinn Louise í Oslól. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 26. nóvember var boðið upp á jólahlaðborð á veitingastaðnum Louise í Osló. Það er svo sem ekki í frásögur færandi nema hvað að af 111 gestum hafa 80 greinst með kórónuveiruna, flestir með Ómíkron afbrigðið. Nú bíður heimsbyggðin í ofvæni eftir niðurstöðum rannsóknar norska landlæknisembættisins á því sem gerðist á jólahlaðborðinu. Hún getur skipt sköpum varðandi viðbrögð við Ómíkron og veitt upplýsingar um þróun heimsfaraldursins á næstu mánuðum.

Norska ríkisútvarpið segir að landlæknisembættið sé nú að rannsaka málið í samstarfi við borgaryfirvöld í Osló. Gestirnir hafa fengið spurningalista þar sem þeir eru meðal annars spurðir um ferðir þeirra inni á veitingastaðnum, hverja þeir ræddu við, hverja smituðu þeir síðan og hvenær þeir voru bólusettir.

Þetta eru spurningar sem heimsbyggðin bíður nú eftir svörum við en jólahlaðborðið og það sem þar gerðist hefur vakið mikla athygli víða um heim því þetta er einn fárra ofursmitatburða sem vitað er um þar sem Ómíkron kemur við sögu.

Niðurstöður rannsóknarinnar verða birtar fljótlega sem svokallað „preprint“ en það þýðir að þær hafa ekki verið ritrýndar. Ástæðan er að mikill áhugi er á niðurstöðunum og því liggur á að koma þeim út svo hægt verði að nota þær til að ákveða viðbrögð við faraldrinum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Fann sjaldgæf Pokémon-spil við tiltekt á æskuheimilinu – Getur greitt fyrir draumabrúðkaupið

Fann sjaldgæf Pokémon-spil við tiltekt á æskuheimilinu – Getur greitt fyrir draumabrúðkaupið
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Notar þú símann þegar þú ert að elda? – Þá skaltu hugsa þig vel um

Notar þú símann þegar þú ert að elda? – Þá skaltu hugsa þig vel um
Pressan
Í gær

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður
Pressan
Í gær

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump
Pressan
Fyrir 2 dögum

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tilraun til að setja met endaði með harmleik

Tilraun til að setja met endaði með harmleik
Pressan
Fyrir 3 dögum

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu