fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Pressan

Handteknir með bílinn fullan af mat frá KFC

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 22. september 2021 06:59

Hluti af matnum. Mynd:Lögreglan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir meintir meðlimir glæpagengis voru handteknir á sunnudaginn þegar þeir voru að reyna að komast til Auckland á Nýja-Sjálandi. Strangar sóttvarnaaðgerðir eru í gildi í borginni og eru veitingastaðir meðal annars lokaðir. Fólk á að halda sig heima og aðeins fyrirtæki, sem eru talin veita bráðnauðsynlega þjónustu, eru opin. Annars staðar í landinu eru sóttvarnaaðgerðir ekki eins harðar og mega veitingastaðir, kaffihús, barir og skemmtistaðir hafa opið og fólk má vera á ferðinni.

Það gæti skýrt af hverju mennirnir, sem eru 23 og 30 ára, voru með mikið magn af mat frá KFC í bíl sínum.

Samkvæmt því sem kemur fram í frétt CNN þá urðu lögreglumenn varir við bíl tvímenninganna í útjaðri Auckland. Þegar þeir sáu lögreglumennina tók ökumaðurinn U-beygju og gaf í en að lokum stöðvaði hann. Þegar lögreglumenn leituðu í bílnum fundu þeir mikið magn af mat frá KFC og mikið magn peninga eða sem svarar til rúmlega 9 milljóna íslenskra króna.

Meðfylgjandi myndir voru teknar af lögreglunni af hluta þess matar sem var í bílnum.

Hluti af matnum. Mynd:Lögreglan

Mennirnir voru að koma frá Hamilton sem er í um 100 kílómetra fjarlægð frá Auckland. Þeir eiga allt að sex mánaða fangelsi yfir höfði sér og sekt upp á sem svarar til um 365.000 íslenskum krónum.

Ekki fylgir sögunni hvort mennirnir ætluðu sjálfir að borða allan matinn eða hvort hann væri ætlaður til sölu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Ávextir og grænmeti geta aukið hættuna á lungnakrabbameini

Ávextir og grænmeti geta aukið hættuna á lungnakrabbameini
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina
Pressan
Í gær

Fann 11 ára son sinn hengdan – Sagði það vera sjálfsvíg – Ekki var allt sem sýndist

Fann 11 ára son sinn hengdan – Sagði það vera sjálfsvíg – Ekki var allt sem sýndist
Pressan
Í gær

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin
Pressan
Í gær

Viðvörun móður eftir að eins árs barn hlaut eitrun af algengri garðplöntu

Viðvörun móður eftir að eins árs barn hlaut eitrun af algengri garðplöntu
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig