Donald Trump bandaríkjaforseti heimsótti yngri bróður sinn, Robert, á spítala í New York þar sem hann liggur þungt haldinn á New York-Presbyterian/Weill Cornell Medical Center spítalanaum á Manhattan.
„Ég vona að það sé í lagi með hann,“ sagði Trump er hann mætti á spítalann, „hann á erfitt í augnablikinu.“ Trump er nú í fríi á einkagolfklúbbi sínum í Bedminster í New Jersey, næsta ríki við New York.
Hvíta húsið gaf ekki út upplýsingar um hvað amaði að Robert Trump eða hvers vegna hann væri á spítala. Robert er 72 ára gamall. Þó er vitað að hann er alvarlega veikur. Trump sagði eftir heimsóknina: „Ég á frábæran bróður. Við höfum átt langt og gott samband, frá fyrsta degi. Hann er á spítala núna og ég vona að það verði í lagi með hann.“
Robert, sem er einn fjögurra systkina forsetans, lagði nýverið fram kæru fyrir hönd Trump fjölskyldunnar um að stöðva útgáfu bókar frænku Trump bræðranna, Mary Trump, sem bar nafnið „Of mikið og aldrei nóg.“ Hún er dóttur elsta bróðursins, Fred Trump yngri, sem glímdi við alkóhólisma og dó 1981, 43 ára að aldri.
Forsetinn hefur sagt bókina vera brot á trúnaðarsamningi sem hún skrifaði undir í tengslum við uppgjör sem hún fékk greitt frá fjölskyldunni í óskyldu máli. Í bókinni segir Mary að enginn fjölskyldumeðlimur hafi heimsótt elsta bróðurinn á spítala nóttina sem hann lést. Trump, segir Mary, fór þess í stað í bíó með öðru systkini sínu.
Robert Trump hefur unnið talsvert með Donald sem yfirmaður Trump samsteypunnar. Áður fyrr var Robert tíður gestur á forsíðum New York slúðurpressunnar, en lét lítið fara fyrir sér í seinni tíð. Hann giftist kærustu sinni til margra ára, Ann Marie Pallan í mars á þessu ári, samkvæmt New York Post. Fyrsta hjónaband hans endaði í skilnaði fyrir meira en áratug síðan.
Robert hefur ítrekað lýst yfir stuðningi við bróður sinn og stjórnmálaferil hans. „Ég styð Donald eitt þúsund prósent,“ sagði Robert.