fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Pressan

Nýskilin kona vann í Lottó – Fyrrverandi eiginmaður hennar vildi ekki lottómiðann

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 10. júlí 2020 21:42

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður, sem er nýlega skilinn, sér sennilega eftir því að hafa, við skilnaðinn, afþakkað að taka yfir lottómiða fjölskyldunnar. Hinn umræddi lottómiði hefur nefnilega tryggt fyrrverandi konu hans yfir 20 milljónir króna. Danske Spil skýrir frá þessu eftir að hafa rætt við hinn nýja lottó milljónamæring, er hún er frá bænum Fredericia.

Konan segist hafa spurt fyrrverandi mann sinn hvort hann vildi taka yfir lottómiða fjölskyldunnar, en þau höfðu verið með hann í áskrift í mörg ár, en hann hafi neitað því. Hún neitar því jafnframt að hún muni deila vinningnum með fyrrverandi manni sínum. Hún segir hún hafi alltaf greitt fyrir miðann og hafi því ekki samviskubit yfir því að halda vinningnum, honum hafi jú verið boðinn miðinn.

Samkvæmt Danske Spil liðu tveir mánuðir áður en konan komst að því að hún væri milljónamæringur. Hún hafði nefnilega gleymt að uppfæra persónuupplýsingar sínar og þess vegna var ekki hægt að hafa samband við hana til að segja henni fréttirnar.

Þegar Danske Spil komst loksins í samband við konuna var hún afar tortryggin og hélt að um svindl væri að ræða og segist hafa neitað að gefa upp reikningsnúmerið sitt og trúði engu fyrr en hún skoðaði stöðuna á lottóreikningnum sínum og sá að inneignin var yfir 20 milljónir króna. Upphæðin var lögð inn á bankareikning konunnar strax daginn eftir.

Konan segist aðeins hafa sagt einum fjölskyldumeðlimi og örfáum vinum frá vinningnum. Börnin hennar vita ekki af vinningum, hún segist helst vilja dekra við þau og barnabörnin í laumi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

FréttirPressan
Í gær

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?
Pressan
Í gær

Hluti af San Andreas misgenginu gæti verið að setja sig í stellingar fyrir jarðskjálfta

Hluti af San Andreas misgenginu gæti verið að setja sig í stellingar fyrir jarðskjálfta
Pressan
Í gær

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sumar stjörnur gætu verið „sýktar“ af svartholum sem eyðileggja þær innan frá

Sumar stjörnur gætu verið „sýktar“ af svartholum sem eyðileggja þær innan frá
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mörg þúsund loftsteinar gætu glatast að eilífu þar sem þeir sökkva niður í ísinn á Suðurskautinu

Mörg þúsund loftsteinar gætu glatast að eilífu þar sem þeir sökkva niður í ísinn á Suðurskautinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Óvænt uppgötvun í bandarískri herstöð

Óvænt uppgötvun í bandarískri herstöð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Loftsteinn á stærð við bíl þau rétt framhjá jörðinni – Uppgötvaðist bara tveimur dögum áður

Loftsteinn á stærð við bíl þau rétt framhjá jörðinni – Uppgötvaðist bara tveimur dögum áður