fbpx
Fimmtudagur 16.apríl 2026
Pressan

Skelfileg uppgötvun í Danmörku – Getur sent heimsbyggðina aftur á byrjunarreit með kórónuveirufaraldurinn

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 5. nóvember 2020 05:39

Mynd: EPA-EFE/MADS CLAUS RASMUSSEN

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Danska ríkisstjórnin tilkynnti á fréttamannafundi í gær að allir minkar í minkabúum landsins skuli aflífaðir. Þetta er gert þar sem kórónuveiran, sem veldur COVID-19, hefur borist í mörg bú og sýkt dýr. Fram að þessu hafa minkar, í búum þar sem smit hafa komið upp, verið aflífaðir og í öllum minkabúum í um 8 km radíus frá búi með smiti. En nú gildir einu hvort smit hefur komið upp, öllum dýrunum verður lógað og hræin brennd.

Ástæðan er að samkvæmt minnisblaði frá dönsku smitsjúkdómastofnuninni kemur fram að COVID-19 smit sem berst í fólk úr minkum getur stökkbreyst og hugsanlega orðið til þess að væntanleg bóluefni gegn veirunni verði óvirkt. Minnisblaðið var sent ríkisstjórninni á þriðjudaginn.

Samkvæmt fréttum danskra fjölmiðla þá hafa rannsóknir sýnt að kórónuveira, sem barst í tólf manns á Norður-Jótlandi úr minkum, hafi stökkbreyst svo mikið að hún geti ógnað virkni væntanlegra bóluefna. Stökkbreytingin olli því að fólkið myndaði ekki mótefni gegn veirunni. Það getur dregið úr virkni væntanlegra bóluefna eða í versta falli gert þau gagnslaus.

Nú þegar er búið að aflífa 1,5 milljónir minka en samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar verður öllum 15-17 milljónum minka í minkabúum landsins nú lógað.

Á fundinum sagði heilbrigðisráðherrann, Magnus Heunicke, að stökkbreytingar veirunnar ógni baráttu heimsins gegn veirunni.

„Rannsóknir hafa sýnt að stökkbreytingarnar geta haft áhrif á væntanleg bóluefni gegn COVID-19. Þetta er ógn við þróun bóluefna gegn kórónuveirunni. Þess vegna er mikilvægt að við bregðumst við hér innanlands,“

sagði hann.

Einnig verður gripið til hertra sóttvarnaaðgerða á Norður-Jótlandi, þar sem flest sýktu minkabúin eru, og verður tilkynnt um hertar aðgerðir í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Djöfullinn er til, hann er innra með mér, og ég borðaði mömmu”

„Djöfullinn er til, hann er innra með mér, og ég borðaði mömmu”
Pressan
Í gær

Reyndi að lina þjáningar móður sinnar – endaði í tveggja ára martröð

Reyndi að lina þjáningar móður sinnar – endaði í tveggja ára martröð
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sérfræðingur segir að þessi sitjandi staða geti valdið banvænum blóðtappa

Sérfræðingur segir að þessi sitjandi staða geti valdið banvænum blóðtappa
Pressan
Fyrir 3 dögum

Stundaði kynlíf með eineggja tvíburum – Ekki hægt að skera úr um faðernið

Stundaði kynlíf með eineggja tvíburum – Ekki hægt að skera úr um faðernið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Langur svefn getur leitt til þyngdartaps

Langur svefn getur leitt til þyngdartaps
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þess vegna er mikilvægt að halda heimilinu hreinu og vel viðhöldnu

Þess vegna er mikilvægt að halda heimilinu hreinu og vel viðhöldnu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þessi lyf á ekki að taka með kaffi

Þessi lyf á ekki að taka með kaffi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þess vegna hættir þú að hitta vini þína eftir að þeir eignast barn

Þess vegna hættir þú að hitta vini þína eftir að þeir eignast barn