fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
Pressan

Charlie Hebdo veður í Erdogan – Skopmynd af forsetanum á forsíðu

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 29. október 2020 07:00

Þetta er forsíðan sem Tyrkir eru ósáttir við.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tyrkir eru ævareiðir vegna forsíðu nýjasta tölublaðs franska ádeiluritsins Charlie Hebdo en skopmynd af Recep Tayyip Erdogan, forseta Tyrklands, prýðir forsíðuna. Á myndinni er hann að drekka bjór og lyftir upp kjól múslímskrar konu svo það sést í afturenda hennar. Fyrirsögnin á forsíðunni er: „Erdogan: Í einkalífinu er hann mjög skemmtilegur“. Ljóst er að myndin mun ekki verða til að draga úr ágreiningi Tyrkja og Frakka.

Erdogan hefur verið harðorður í garð Frakka að undanförnu og hefur meðal annars sagt að Emmanuel Macron, Frakklandsforseti, eigi að fara í geðrannsókn vegna meðferðar hans á múslimum í Frakklandi. Hann hefur einnig hvatt Tyrki til að sniðganga franskar vörur. Erdogan segir Macron vera mjög fjandsamlegan í garð múslima.

Talsmaður Erdogan segir að Charlie Hebdo standi fyrir „menningarlegum rasisma“ með myndbirtingunni.

„Við fordæmum þessa viðbjóðslegu tilraun blaðsins til að breiða út menningarlegan rasisma og hatur. Andmúslímsk stefna Macron forseta ber árangur!“

skrifaði talsmaðurinn, Fahrettin Altun, á Twitter.

Deilurnar hófust í kjölfar hins hrottalega morðs á kennaranum Samuel Paty í París. Hann var myrtur vegna þess að hann sýndi nemendum sínum skopmyndir af spámanninum Múhameð í kennslu um tjáningarfrelsið. Í kjölfarið hafa frönsk stjórnvöld sett ný lög til að berjast gegn „aðskilnaðarstefnu íslamista“. Macron hefur einnig heitið því að verja tjáningarfrelsið sem heimilar einmitt blöðum eins og Chalie Hebdo að birta teikningar af spámanninum Múhameð og nú Erdogan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Miðvikudagar verða hér eftir frídagar í opinbera geiranum

Miðvikudagar verða hér eftir frídagar í opinbera geiranum
Pressan
Í gær

Fékk 18 ára dóm eftir að 200 lík fundust í niðurníddu húsnæði

Fékk 18 ára dóm eftir að 200 lík fundust í niðurníddu húsnæði
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tucker Carlson segir að dómsmálaráðuneytið sé að rannsaka hann vegna meintra tengsla við Íran – „Ég má tala við hvern sem er“

Tucker Carlson segir að dómsmálaráðuneytið sé að rannsaka hann vegna meintra tengsla við Íran – „Ég má tala við hvern sem er“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hlúði að „broddgelti“ alla nóttina – Komst að sannleikanum hjá dýralækninum

Hlúði að „broddgelti“ alla nóttina – Komst að sannleikanum hjá dýralækninum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Bandaríski draumurinn hefur snúist við – Nú vilja margir yfirgefa Bandaríkin

Bandaríski draumurinn hefur snúist við – Nú vilja margir yfirgefa Bandaríkin
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þetta eru helstu ástæðurnar fyrir að myglusveppur nær að breiðast út

Þetta eru helstu ástæðurnar fyrir að myglusveppur nær að breiðast út