fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Pressan

Sakamál: Kaffið í kirkjunni drepur – Telja fleiri hafa verið að verki í dularfullu máli

Jón Þór Stefánsson
Laugardaginn 24. október 2020 21:00

Lútherstrúarkirkja Gústafs Adolfs Svíakonungs er áskrá yfir sögulegar byggingar í Bandaríkjunum. Þrátt fyrir það hefur kaffið í kirkjunni kostað fólk lífið. MYND/GETTY

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í Nýju-Svíþjóð í Maine-fylki búa einungis um 500 manns. Allir þekkja alla og margir eru tíðir kirkjugestir í hinni litlu kirkju bæjarins. Engan hefði grunað að kirkjuferð myndi reynast lífshættuleg og falleg messa myndi hafa svo hræðilegar afleiðingar.

Eftir messu einn sunnudaginn árið 2003 kom sóknarfólkið saman í kirkjunni og fékk sér kaffi og kræsingar. Dale Anderson var einn þeirra sem fengu sér kaffibolla, en nokkrum mínútum síðar bað hann eiginkonu sína að skutla sér heim. Hann lýsti upplifun sinni svona: „Við komum heim eftir messuna og ég byrjaði bara að æla lifur og lungum.“ Hann vissi þó ekki að á sama tíma fundu aðrir kirkjugestir fyrir svipuðum einkennum.

Andlát undirstrikaði alvarleika málsins

Læknar héldu að um matareitrun væri að ræða, en meðferðirnar sem þeir beittu virtust gera lítið gagn. Þegar hinn 78 ára gamli Walter Morrill lést vegna eitrunarinnar, þá áttuðu læknarnir sig á því að eitthvað grafalvarlegt væri í gangi. Öllum hinum sem fundu fyrir einkennum, fimmtán talsins, var komið á sjúkrahús í hvelli.

Á sjúkrahúsinu starfaði Rose Tanguay, sem var að læra hjúkrunarfræði. Hún var fyrst til að gruna að frumefnið hættulega arsenik væri skaðvaldurinn. „Ég í rauninni púslaði þessu saman,“ sagði hún. „Útilokaði allt nema arsenik.“

Rannsóknarlögreglumaður fór í kirkjuna og leitaði að einhverju dularfullu við bakkelsið sem hafði verið boðið upp á, en hann fann ekkert bitastætt. Hjúkrunarfræðingur á sjúkrahúsinu áttaði sig á því að allir þeir sem lágu inni höfðu drukkið kaffi og því var ákveðið að rannsaka það.

Móteitur fyrir tilviljun

Um það bil sólarhring eftir messuna voru heilbrigðisyfirvöld í Maine farin að spyrjast fyrir um móteitur gegn arseniki. Fyrir algjöra tilviljun var slíkt til í fylkinu og því komið í flýti á sjúkrahúsið. Heilbrigðisstarfsfólkið var þó hikandi við að gefa sjúklingunum móteitrið, en væri grunur þeirra rangur, um að arsenik væri skaðvaldurinn, myndi móteitrið hafa frekari skaðleg áhrif. Tekin var ákvörun um að gefa sjúklingunum móteitrið, sem bjargaði lífi þeirra.

Nokkrum klukkustundum síðar kom í ljós að vissulega hefði verið arsenik í kaffinu. Arsenikið var í verulegu magni. Því var ljóst að ekki var um neina tilviljun að ræða, heldur hafði einhver komið því fyrir viljandi.

„Þú eitrar ekki fyrir þeim“

„Allir eru gríðarlega sorgmæddir. Allir þekkja þá sem eru veikir. Allir þekkja alla,“ sagði einn bæjarbúa á meðan málið var í rannsókn, en Nýja-Svíþjóð í Bandaríkjunum er álíka fámenn og Seyðisfjarðarkaupstaður.

„Ég trúði því hreinlega ekki að það væru einhver illindi á milli þessa fólks. Ef þú ert ósáttur við einhvern hérna, þá gengur þú upp að viðkomandi og segir: „Þú komst illa fram við mig um daginn.“ „Þú eitrar ekki fyrir þeim,“ var haft eftir öðrum bæjarbúa og enn annar sagði: „Þetta er svo náinn hópur hérna. Svo eru svo margir skyldir hver öðrum.“

„Ég var einn að verki“

Málið þótti afar dularfullt. Enginn lá sérstaklega undir grun, þangað til fimm dögum eftir messuna. Danny Bondeson, 53 ára, sem hafði verið virkur í kirkjustarfinu, fannst látinn á bóndabæ sínum. Hann hafði framið sjálfsvíg og skilið eftir bréf, þar sem hann játaði sök í málinu. Bréfið hefur aldrei verið birt almenningi, en litlir hlutar úr því hafa birst opinberlega, líkt og: „Ég var einn að verki. Ég var einn að verki.“

Málið var talið óupplýst í nokkur ár en var að lokum talið upplýst og Danny sagður sá seki, án þess að eiga sér samverkamann. Aldrei hefur legið almennilega fyrir hvers vegna Danny á að hafa framið glæpinn. Áðurnefndur Dale Anderson sagði: „Einhver hafði gert honum eitthvað. Og hann ákvað að gera eitthvað til að gera fólk veikt.“ Þá hefur því verið haldið fram að minniháttar ágreiningur innan kirkjunnar hafi fengið hann til að fremja glæpinn.

„Ég held að það séu fleiri sekir þarna úti“

Einn þeirra sem veiktist var Eric Margeson, vinur Dannys. Sumir hafa haldið því fram að hann tengist ástæðu eitrunarinnar. Aðrir telja að Danny Bondeson hafi ekki verið einn að verki og einhverjir þeirra seku gangi lausir enn þann dag í dag. Dale Anderson er þeirrar skoðunar: „Það er eitthvað meira þarna á bak við, en bara Danny. Hann vissi kannski eitthvað, en ég held að það séu fleiri sekir þarna úti.“

Ónafngreind kona sem drakk kaffið lést nokkrum árum síðar. Talið er að arsenik-eitrunin hafi spilað stóran þátt í dauða hennar. Þá segist Dale Anderson aldrei hafa náð fullri heilsu aftur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Vísindamanni er brugðið vegna niðurstöðu nýrrar rannsóknar

Vísindamanni er brugðið vegna niðurstöðu nýrrar rannsóknar
Pressan
Fyrir 3 dögum

4.300 ára grafhýsi gegndi ákveðnu hlutverki

4.300 ára grafhýsi gegndi ákveðnu hlutverki
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fimm í lífshættu eftir sprengingu í Danmörku – Talið að þurrsjampó hafi komið við sögu

Fimm í lífshættu eftir sprengingu í Danmörku – Talið að þurrsjampó hafi komið við sögu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Prestur brann til bana þegar kviknaði í kufli hans í messu

Prestur brann til bana þegar kviknaði í kufli hans í messu