fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

„Enginn fer inn og enginn fer út“ – Íbúar í 9 blokkum lokaðir inni næstu fimm daga

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 6. júlí 2020 07:01

Frá Melbourne í Ástralíu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hvernig myndi þér verða við ef borgarstjórinn eða bæjarstjórinn í borginni/bænum þínum myndi án nokkurs fyrirvara fyrirskipa þér að halda þig innandyra næstu fimm daga að minnsta kosti af því að nágrannar þínir greindust með kórónuveiruna? Eflaust myndi flestum bregða í brún og eflaust væri fólk missátt við ráðstöfun sem þessa. En þetta upplifa íbúar í 9 íbúðarblokkum í Flemington hverfinu í Melbourne í Ástralíu eftir að 23 íbúar í blokkunum greindust með kórónuveiruna.

Ekki nóg með að fólki sé fyrirskipað að halda sig innandyra heldur munu lögreglumenn standa vörð um blokkirnar allan sólarhring til að tryggja að útgöngubannið verði virt og að enginn komist inn í þær.

The Sydney Morning Herald skýrir frá þessu. Melbourne er í Viktoríufylki og það er Daniel Andrews, forsætisráðherra fylkisins, sem hefur í samráði við borgaryfirvöld ákveðið að grípa til þessara hörðu aðgerða.

Í blokkunum búa um 3.000 manns. 23 hafa greinst með kórónuveiruna að undanförnu og koma þeir úr 12 fjölskyldum.

„Enginn fer inn og enginn fer út.“

Sagði Andrew á fréttamannafundi og sagði að ástæðan fyrir þessum hörðu aðgerðum sé að fólk búi svo þétt í blokkunum að mikil smithætta sé í þeim, það þýðir að veiran geti „breiðst út eins og sinueldur“ sagði hann.

Hann sagði að íbúar blokkanna verði í sóttkví í fimm daga hið minnsta en það er sá tími sem það tekur að taka sýni úr öllum íbúum og rannsaka þau. Hann sagði að þegar niðurstöðurnar liggja fyrir verði staðan metin á nýjan leik.

The Sydney Morning Herald segir að minnst 500 lögreglumenn muni vakta blokkirnar, bæði inni í stigagöngum og utanhúss.

Sóttkvíin er liður í umfangsmiklum aðgerðum yfirvalda til að reyna að stemma stigum við útbreiðslu veirunnar en að undanförnu hefur smitum farið fjölgandi í fylkinu. Á laugardaginn greindust 108 smit sem er það mesta sem hefur greinst á einum degi síðan 28. mars.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 11 klukkutímum

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina
Pressan
Fyrir 11 klukkutímum

Aukin glæpatíðni á Tenerife

Aukin glæpatíðni á Tenerife
Pressan
Í gær

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin
Pressan
Í gær

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Í gær

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman