Daginn eftir fundu leitarmenn drengina þrjá, þá Christopher Byers, Stevie Branch og Michael Moore. Nakin lík þeirra fundust á skógarsvæði sem nefnist Robin Hood Hills en það var vinsælt leiksvæði barna. Drengjunum hafði augljóslega verið misþyrmt.
Líkin fundust í vatni við árbakka. Þau voru bundin föst með skóreimum. Vinstri úlnliður Michael var bundinn við vinstri ökkla hans og hægri úlnliðurinn við hægri ökklann. Öll þrjú líkin báru þess merki að þeim hefði verið misþyrmt og stungin. Bitför voru á andliti Stevie. Lík Christopher var verst útleikið, kynfæri hans höfðu meðal annars verið skorinn af.
Strax í upphafi rannsóknarinnar beindust sjónir lögreglunnar að Damien Echols, 18 ára. lögreglumennirnir James Sudbury og Steve Jones töldu að trúarlegt yfirbragð væri yfir morðunum. Damien var þekktur fyrir að vera alltaf svartklæddur. Hann hlustaði á þungarokk og hafði áhuga á djöfladýrkun. Það sama átti við um besta vin hans, hinn 16 ára Jason Baldwin. Þeir voru báðir álitnir utangarðs og pössuðu ekki inn í hópinn.
Þeir höfðu verið handteknir áður fyrir eignaspjöll og búðarþjófnaði en voru að öðru leyti eins og margir aðrir fátækir hvítir strákar í úthverfi.
Damien var yfirheyrður tveimur dögum eftir morðið en sú yfirheyrsla skilaði engum árangri.
Það var ekki fyrr en þann 3. júní sem skriður komst á rannsóknina en þá var Jessie Misskelley, vinur Damien og Jason, yfirheyrður. Hann var 17 ára. Greindarvísitala hans var aðeins 72. Hann var yfirheyrður án þess að lögmaður eða foreldrar hans væru viðstaddir. Augljóst var að hann skildi ekki nærri allt sem lögreglumennirnir sögðu við hann og sýndu honum.
12 klukkustunda yfirheyrsla endaði með að hann játaði að hafa myrt drengina í samvinnu við Damien og Jason. Þar með taldi lögreglan sig hafa leyst málið. Damien var dæmdur til dauða 1994 en Jessie og Jason í ævilangt fangelsi. Fyrir dómi kom fram að drengirnir hefðu verið myrtir í tengslum við djöfladýrkun.
Málið hefur alla tíð verið umdeilt og margar heimildamyndir hafa verið gerðar um það. Frægt fólk hefur staðið fyrir fjársöfnunum til að styðja við bakið á þremenningunum sem margir telja saklausa af morðunum. Í júlí 2007 voru ný sönnunargögn í málinu kynnt. Um erfðaefni, sem fannst á morðvettvangi, var að ræða. Sumt af því var hvorki af fórnarlömbunum né hinum dæmdu.
Í águst 2011 voru þremenningarnir látnir lausir eftir að hafa skrifað undir samning við ákæruvaldið sem fól í sér að þeir lýstu yfir sakleysi sínu en viðurkenndu um leið að saksóknarar hefðu næg sönnunargögn til að fá þá dæmda. Dómnum yfir þeim var í kjölfarið breytt í þann dagafjölda sem þeir höfðu þá setið í fangelsi. Þeir voru látnir lausir eftir 18 ár og 78 daga í fangelsi.