fbpx
Föstudagur 13.júní 2025
Pressan

Lögreglan ruddist inn í hús til að sækja óbólusett barn

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 4. apríl 2019 21:30

Skjáskot af upptöku lögreglunnar. Mynd:Lögreglan í Chandler

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í lok febrúar brutu lögreglumenn sér leið inn í hús í Chandler í Arizona í Bandaríkjunum til að sækja tveggja ára dreng sem foreldrarnir vildu ekki láta bólusetja. Bandarískir fjölmiðlar hafa fjallað um málið síðustu daga.

Málið hófst þegar Sarah Beck fór með drenginn til læknis því hann var með 40,5 stiga hita. Læknirinn taldi að drengurinn gæti verið með lífshættulegan sjúkdóm. Sarah var því vísað á sjúkrahús með drenginn til rannsóknar. En þangað vildi hún ekki fara því hann hafði ekki verið bólusettur og hún óttaðist að hann myndi smitast af öðrum sjúkdómum ef hún færi með hann á sjúkrahúsið.

Þegar læknirinn komst að því síðar um daginn að Sarah hefði ekki farið á sjúkrahúsið með drenginn lét hún barnaverndaryfirvöld vita. Þau settu sig í samband við lögregluna í Chandler sem mat stöðuna sem svo að heilsu og velferð drengsins væri stefnt í voða og að hann þyrfti skjóta læknisaðstoð.

Þegar lögreglumenn knúðu dyra hjá fjölskyldunni neituðu Sarah og maður hennar, Brooks Bryce, að hleypa þeim inn. Þau sögðu að hitinn hefði lækkað en vildu ekki leyfa lögreglunni að sannreyna það.

Frá aðgerðum lögreglunnar. Mynd:Lögreglan í Chandler.

Á myndbandsupptöku sem lögreglan hefur birt af atburðarásinni sést að hún reyndi ítrekað að fá foreldrana til að hleypa lögreglumönnum inn í húsið. Þau voru þá vöruð við að barnaverndaryfirvöld myndu taka drenginn í sína umsjá tímabundið þar sem læknirinn hefði áhyggjur af heilsufari hans.

Á meðan þetta stóð yfir fékk barnaverndarnefnd dómsúrskurð um að hún skyldi taka drenginn í tímabundna umsjá.

Foreldrarnir vildu ekki frekar enn áður hleypa lögreglunni inn og á endanum brutu lögreglumenn dyrnar upp og fóru inn í húsið. Í húsinu voru tvö önnur börn parsins og voru þau með svipuð sjúkdómseinkenni og bróðirinn. Þau voru einnig tekin í umsjá barnaverndaryfirvalda.

Í kjölfarið á þessu hóf lögreglan að rannsaka mál foreldranna betur og voru þau kærð fyrir misþyrmingar á börnum sínum.

Foreldrarnir eru allt annað en sáttir við þetta og lögmaður þeirra segir að brotið hafi verið gegn stjórnarskrárvörðum rétti þeirra til að annast eigin börn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Varpa ljósi á það sem fannst í leitinni að Madeleine McCann í síðustu viku

Varpa ljósi á það sem fannst í leitinni að Madeleine McCann í síðustu viku
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ása lýsir því hvernig Rex bað hennar og hvað hann gerði á meðan hún dvaldi á Íslandi árið 2009

Ása lýsir því hvernig Rex bað hennar og hvað hann gerði á meðan hún dvaldi á Íslandi árið 2009