fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Segist vera tímaferðalangur – Spáir gríðarlegum flóðum í Bandaríkjunum

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 6. desember 2018 18:30

Munu Kalifornía og Flórída fara undir vatn?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikil flóð munu skella á stórum hluta Bandaríkjanna 2030 og munu Kalifornía og Flórída meðal annars fara á kaf og verða það um ókomna framtíð. Þessu heldur ´Noah´ fram en hann segist vera tímaferðalangur.

Fjallað er um hann og rætt við hann á YouTube-rásinni ApexTV sem er rás samsæriskenninga og því rétt að treysta ekki um of á áreiðanleika hennar.

Í umfjöllun ApexTV segir Noah að flóðin séu afleiðing loftslagsbreytinga.

„Ég er ekki að grínast. Þetta er engin risalygi – Ég er raunverulega tímaferðalangur. Ég er með sannanir fyrir þessu.“

Sönnunin sem hann telur sig hafa fyrir þessu er landakort af Bandaríkjunum en hann segir kortið sýna hvernig Bandaríkin muni líta út 2030 og eru Kalifornía og Flórída alveg undir vatni.

Þessi meinti tímaferðalangur hvetur síðan íbúa við sjávarsíðuna til að búa sig undir hið versta þar sem yfirborð sjávar muni hækka vegna bráðnunar jökla.

„Fólk heldur að hnattræn hlýnun sé ekki að eiga sér stað – en hún er að eiga sér stað. Það er ekki hægt að stöðva hana – þetta gerist.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“
Pressan
Í gær

Ný veira gæti borist úr matnum í augu

Ný veira gæti borist úr matnum í augu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman
Pressan
Fyrir 2 dögum

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á Tenerife

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á Tenerife