fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Matur

Heiðrún um hollt mataræði: „Þumalputtareglan mín er einföld, mjög umdeild og klárlega ekki í tísku“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 3. september 2019 20:00

Heiðrún Finnsdóttir prófaði alla kúrana sem völ var á áður en hún fann jafnvægi í mataræðinu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heiðrún Finnsdóttir er tveggja barna móðir og CrossFittari. Hún bæði stundar CrossFit af kappi og þjálfar aðra. Heiðrún spáir mikið í næringu og heilsu, bæði líkamlegri og andlegri.

Hún sagði DV sögu sína í mars. Hún sagði meðal annars frá því hvernig hún prófaði alla megrunarkúra og töfralausnir sem völ var á í þeirri von að léttast og bæta lífsgæðin. „Það gerðist aldrei neitt almennilega en ég var alltaf að reyna og gera hver mistökin á eftir öðrum,“ sagði Heiðrún.

Heiðrún heldur úti vefsíðunni builtbydottir.com og Instagram-síðunni @heidrunfinnsdottir þar sem hún deilir ýmsum fróðleik tengdum næringu og heilsu.

Í nýjasta pistli sínum á builtbydottir.com fer Heiðrún yfir heilbrigt mataræði í ljósi allra kúranna sem njóta mikilla vinsælda í dag. Hún segir þumalputtareglu sína varðandi hollt mataræði vera einfalda en umdeilda. Það eru eflaust margir sem tengja við skrif Heiðrúnar sem hafa reynt að fylgja þessum ótal „reglum“ um það sem má og má ekki. Reglurnar eru eins margar og þær eru misvísandi.

Heiðrún Finnsdóttir. Mynd: Hanna/DV

Heiðrún gaf DV góðfúslegt leyfi til að deila pistlinum með lesendum.

„Borðaðu bara holla fæðu right? Easy!

Samt ekki borða sykur eða korn. Slepptu hveiti og glúteni. Ekki borða of mikið af eggjum út af þessu þarna kólesteroli og ekkert beikon eða ekkert pasta.

Það má ekki drekka gos. Insúlín reset, engar kartöflur. Detoxum. Sleppum öllum kolvetnum og borðum bara fitu svo við komumst í ketosis, verðum sjúklega mjó en ógeðslega andfúl, worth it!

Í útlegð með allar olíur! En notaðu kókosolíu! Slepptu kókosolíunni og fáðu þér avacado olíu í staðin! Heyrðu ný rannsókn að koma og aftur í fitusnautt!  Nei bíddu annars, veldu fitusnauð jógúrt og hentu hnetunum, fita fitar!

En manstu við vorum hætt að borða kolvetni og ávexti og nú erum við bara alltaf svöng og vitum ekki neitt um neitt, snúumst í hringi og endum á að grípa með okkur risa prótein stykki frá þekktum sælgætisframleiðanda en það er í hollustu rekkanum og merkt hátt í próteinum. Hlýtur að vera hollt right? RIGHT?

Teldu hitaeiningar, nei hættu að telja hitaeiningar og teldu macros! RUGL. Borðaðu bara 1200 hitaeiningar á dag, nei annars, sveltu þig! Því Sigga frænka þekkir gaur sem á konu sem á mömmu sem borðaði sko bara 700 hitaeiningar á dag, reykti 2 pakka af filterlausum kamel, hreyfði sig aldrei og var tágrönn alveg þangað til hún hrökk upp af 95 ára gömul. Gerum öll eins og mamma konu vinar Siggu frænku!“

Skrifar Heiðrún og heldur áfram.

„Misvísandi skilaboð koma úr öllum áttum. Hvert vörumerkið á fætur öðru keppist við að selja okkur heilsulausnir og reyna að sannfæra okkur um að þeirra vara sé sú besta á markaðnum. Og við, litlu sætu lúðarnir, sannfærð um að við séum að fá bestu næringu sem kostur er á þegar raunin er sú að við erum að svelta líkaman okkur um ákveðin næringarefni.

Hættu að skera út kolvetni og fitu. Þú fitnar alveg jafn mikið af kolvetnum, fitu og próteini ef þú borðar of mikið af því. Þú þarft á fitunni að halda. Þú verður að fá kolvetni og prótein er ekki hinn heilagi kaleikur sem gerir þig mjóa/n á einni nóttu.

Það sem virkar er að borða holla fæðu. Fæðu sem þú býrð til heima hjá þér, hentar þér og þínum lífstíl! Fæðu sem er ekki of ólík því sem þú ert að borða í dag.“

Hvað á maður að borða?

Heiðrún segir að svarið sé einfalt.

„Þumalputtareglan mín er einföld, mjög umdeild og klárlega ekki í tísku en hún hljómar svona:

Borðaðu mat.

Leyfðu mér að útskýra. Þú grípur með þér pakka af sælgæti. Á pakkanum er innihaldslýsing:

„Sykur, mjólk, kakó, gæti innihaldið snefil af hnetum o.s.frv.“

Þetta er ekki matur, þetta er rusl. En svo grípuru með þér banana, engin innihaldslýsing = matur!

Fiskur = matur

Ferskar 100% kjúklingabringur = matur

Hnetur = matur

Epli = matur

Súkkulaði = Ekki matur, en sjúklega gott og allt í lagi að fá sér einu sinni og einu sinni

Egg = matur

Tilbúnir frosnir réttir = ekki matur

Pizza = ekki matur en í lagi einu sinni og einu sinni

Möndlur = matur

Sérðu hvað ég er að fara?  Þú lærir inn á þetta. Það tekur tíma. Ég er enn að læra og búin að vera að í að verða 4 ár! Pinterest er vinur þinn og þér er alveg óhætt að spyrja mig út í þetta.

Reynum að velja óunninn mat í 80% tilfella og leyfum okkur að njóta þess að borða rusl í hin 20%“

Hér getur þú lesið fleiri pistla eftir Heiðrúnu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa