Safaríkt og vel kryddað lambalæri er gaman að bera á borð á tyllidögum. En hvernig á að skera lambalæri þannig að allt kjötið nýtist?
Á vefsíðunni Icelandic Lamb er að finna ýmsan fróðleik um íslenska lambakjötið, til dæmis þetta myndband hér fyrir neðan sem kennir áhorfendum að skera lambalærið rétt.
Þannig að ef að lambalæri er á þínu veisluborði í framtíðinni ættirðu að taka þér smá pásu í tæpa mínútu og skoða hvernig nákvæmlega á að skera lærið.