fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Fréttir

Fylgjendafjöldi Kleina hrynur í kjölfar handtöku vegna meintrar nauðgunar

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 11. mars 2026 08:53

Kristján Einar Sigurbjörnsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fylgjendafjöldi sjómannsins Kristjáns Einars Sigurbjörnssonar á Instagram hefur hrunið síðasta sólarhring eftir fregnir af handtöku hans um helgina.

Kristján, sem þekktur er undir gælunafninu Kleini, var handtekinn ásamt tveimur öðrum mönnum og eru þeir grunaðir um hópnauðgun gagnvart konu á þrítugsaldri, á laugardagsnótt, á hóteli á Akureyri. DV greindi fyrst frá málinu á sunnudag. Mennirnir voru látnir lausir á mánudagskvöld og var ekki krafist gæsluvarðhalds yfir þeim.

Sjá einnig: Nauðgunarmálið á Akureyri: Mennirnir látnir lausir

Í gær steig Hafdís Björg Kristjánsdóttir einkaþjálfari fram og greindi frá ofbeldi í sambandi þeirra Kristjáns. Söngkonan Svala Björgvinsdóttir greindi sömuleiðis frá ofbeldi í sambandi hennar og Kristjáns. Sögðust þær styðja hvor aðra.

Sjá einnig: Svala segist standa með Hafdísi og sé sjálf þolandi sama manns

Í baráttuhópum þolenda ofbeldis á Facebook hefur verið hvatt til þess að sýna stuðning við þolendur og hætta að fylgja (e. unfollow) Kristjáni á Instagram.

Í gær var fylgjendafjöldi hans 7.488 manns kl. 13.17. Þegar þetta er skrifað þá er fjöldinn kominn niður í 6.542 og fækkar stöðugt.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Morgunblaðið biðst afsökunar á dánartilkynningarklúðrinu og ætlar að endurskoða verkferla

Morgunblaðið biðst afsökunar á dánartilkynningarklúðrinu og ætlar að endurskoða verkferla
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Ragnar Freyr veltir fyrir sér hvort þetta hafi kostað hann starfið

Ragnar Freyr veltir fyrir sér hvort þetta hafi kostað hann starfið
Fréttir
Í gær

Flugfélagið Vueling þarf að greiða níu íslenskum farþegum bætur – Kunnu ekki að lesa úr veðurspá

Flugfélagið Vueling þarf að greiða níu íslenskum farþegum bætur – Kunnu ekki að lesa úr veðurspá
Fréttir
Í gær

Ragnar Freyr kannast ekki við tilboð um hærra starfshlutfall – „Hér er því farið með fleipur“

Ragnar Freyr kannast ekki við tilboð um hærra starfshlutfall – „Hér er því farið með fleipur“