fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Fréttir

Nauðgunarmálið á Akureyri: Mennirnir látnir lausir

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 10. mars 2026 11:30

Kristján Einar Sigurbjörnsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ekki verður krafist gæsluvarðhalds yfir þremur mönnum sem grunaðir eru um hópnauðgun gagnvart konu á þrítugsaldri, á laugardagsnótt, á hóteli á Akureyri.

DV greindi fyrst frá málinu á sunnudag.

Sjá einnig: Þrír menn grunaðir um nauðgun á Akureyri í nótt

Samkvæmt heimildum DV hafa mennirnir verið látnir lausir en rannsókn málsins heldur áfram. Brotaþoli er sögð bera mikla áverka eftir árásina og að hún hafi þolað margra klukkustunda ofbeldi af hendi grunuðu. Einnig eru þeir taldir hafa tekið upp myndband af ofbeldinu sem fór í einhverja dreifingu á samfélagsmiðlum.

Sjá einnig: Meint hópnauðgun á Akureyri sögð einstaklega hrottaleg

Mbl.is og Vísir hafa greint frá því að einn hinna grunuðu sé áhrifavaldurinn Kleini, Kristján Einar Sigurbjörnsson, og vitna í Facebook-færslu fyrrverandi unnustu hans.

Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur ekki veitt frekari upplýsingar um málið en þær að nauðgunarmál sé til rannsóknar hjá embættinu.

Uppfært kl. 12:17:

Samkvæmt nýjum heimildum DV voru mennirnir látnir lausir í gærkvöld.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Krefjast þess að fá sæti við borðið eftir tilkynningu ríkisstjórnarinnar – „Við verðum ekki hunsuð“

Krefjast þess að fá sæti við borðið eftir tilkynningu ríkisstjórnarinnar – „Við verðum ekki hunsuð“
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Daníel: „Ég nenni ekki neitt að fara í fangelsi!”

Daníel: „Ég nenni ekki neitt að fara í fangelsi!”
Fréttir
Í gær

Meinaður aðgangur að minnisblöðum Bjarna og Þorgerðar Katrínar

Meinaður aðgangur að minnisblöðum Bjarna og Þorgerðar Katrínar
Fréttir
Í gær

Dagur reifar ömurlegar afleiðingar Brexit – „Þær eldast illa yfirlýsingar íslenskra ráðamanna“

Dagur reifar ömurlegar afleiðingar Brexit – „Þær eldast illa yfirlýsingar íslenskra ráðamanna“