fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Fjórir í gæsluvarðhaldi í umfangsmiklu fíkniefnamáli

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 29. apríl 2026 18:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjórir sitja í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umfangsmiklu fíkniefnamáli, sem snýr að innflutningi á rúmlega 14 lítrum af amfetamínbasa. 

Þrír þeirra voru handteknir í viðamiklum aðgerðum Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Tollgæslunnar um miðjan mánuðinn og eru tveir þeirra sagðir starfsmenn Eimskipa, eins og áður hefur verið greint frá í fréttum.

Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að fjórði einstaklingurinn var handtekinn í síðustu viku. Varðhaldið yfir honum hefur verið framlengt til 5. maí á grundvelli rannsóknarhagsmuna og sama gildir um einn af þeim þremur sem áður voru handteknir.

Hinum tveimur hefur sömuleiðis verið gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi, en nú á grundvelli almannahagsmuna til 25. maí.

Fjórmenningarnir, sem eru íslenskir, eru á þrítugs-, fertugs- og sextugsaldri.

Heimildir DV herma að einn fjórmenninganna sé Albani með íslenskan ríkisborgararétt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Sláandi þróun meðal íslenskra ungmenna – Ofbeldi, ójafnrétti, persónunjósnir, klám og leynilegir nektarmyndahópar

Sláandi þróun meðal íslenskra ungmenna – Ofbeldi, ójafnrétti, persónunjósnir, klám og leynilegir nektarmyndahópar
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Fótur hlaupakonu í Londonmaraþoninu „sprakk“ – Skórinn alblóðugur

Fótur hlaupakonu í Londonmaraþoninu „sprakk“ – Skórinn alblóðugur
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Reyndur ferðabloggari um Ísland – „Þetta er ódýrasta leiðin til að ferðast um Ísland án þess beinlínis að pína sig“

Reyndur ferðabloggari um Ísland – „Þetta er ódýrasta leiðin til að ferðast um Ísland án þess beinlínis að pína sig“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Afhjúpa „rauða hverfið“ í Reykjavík – Nágrannar reyna að fæla vændiskaupendur frá með skjávarpa

Afhjúpa „rauða hverfið“ í Reykjavík – Nágrannar reyna að fæla vændiskaupendur frá með skjávarpa
Fréttir
Í gær

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“
Fréttir
Í gær

Risastórt kókaínmál á Austurlandi

Risastórt kókaínmál á Austurlandi
Fréttir
Í gær

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“
Fréttir
Í gær

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“