

Bandarísk hjón eru miður sín eftir að myndavél á heimili þeirra sýndi leigusalann stunda kynlíf á gólfinu. Eftir það gerði hann sér samloku, berrassaður.
Eins og segir í frétt The Daily Star um málið þá bað Jason Crawford, leigjandi íbúðar í bænum Westland í Michigan fylki, leigusala sinn um að laga gat á þakinu. Fuglar höfðu verið að nota holuna til þess að koma inn á háaloftið.
Jason og eiginkonu hans brá hins vegar mikið í brún þegar þau skoðuðu myndefni úr öryggismyndavél á heimilinu, þar sem þau búa með ungri dóttur sinni.
Sáu þau að þegar leigusalinn mætti til þess að gera við gatið þá nýtti hann tímann vel sem hann var í íbúðinni. Sást hann stunda kynlíf með konu á gólfi íbúðarinnar. Eftir það gekk hann svo um nakinn, meðal annars ráfaði hann inn í eldhús og bjó sér stil samloku til að gæða sér á.

„Hann labbaði fram og til baka allsber. Ég held að hann hafi verið að búa sér til samloku, ég veit það ekki,“ sagði Jason í viðtali við sjónvarpsstöðina Fox News.
Sagði Jason að hjónunum finnist þetta vera svívirða. Þau séu reið og finnist þau hafa verið vanvirt af leigusalanum. Sagði Jason að parið hefði talað við leigusalann um þetta atvik en að hann hafi ekki sýnt neina iðrun á hegðun sinni.
„Ég sagði honum að ég hefði séð hann á myndbandsupptökunni. Eiginkona mín ætlar að tala við lögregluna. En hann sagði bara: Og hvað?…. og lagði svo á,“ sagði Jason forviða.
Hjónin hafa tilkynnt málið til lögreglunnar. Þau hafa einnig fengið annan aðila til þess að gera við þakið, því þau vilja ekki fá leigusalann aftur inn á heimilið. Hann hafi verið að gera eitthvað allt annað þegar hann átti að vera að laga þakið.
Samkvæmt frétt Fox News um málið er óljóst hvort að það sem leigusalinn gerði sé ólöglegt. Lögmönnum greinir á um það. Hugsanlega falli þetta undir innbrot á heimili. Flestir telja að besti möguleikinn fyrir Crawford hjónin til að fá einhverjar bætur sé að höfða einkamál fyrir að brjóta skilmála leigusamnings.